útlendingar.
Herra forseti. Ég reyni nú að missa ekki af ræðum hv. þingmanns sem hér talaði (OPJ: Nú, jæja.) og dreg mig inn í þingsal til að hlusta á ræðu hans, en svo vildi ekki betur til en að ég fékk áríðandi símtal og þurfti að fara fram og missti af flestu því sem hv. þingmaður sagði í sinni ræðu. Ég fagna því að það sé von á þingsályktunartillögu sem við fáum að ræða hér í þingsal. Það er sannarlega nauðsynlegt fyrir okkur að vinna í inngildingarmálum. Það versta sem hægt er að gera í uppeldi og í stjórnun yfirleitt er afskiptaleysi. Þá búum við til jaðarhópa og aukum ójöfnuð. Við þurfum svolítið að hysja upp um okkur þegar kemur að þessu og ég fagna því þeim fréttum sem hv. þingmaður segir mér um að það sé von á þessu máli. Ef hæstv. ríkisstjórn lifir ekki nægilega lengi til að taka á því máli þá vona ég að sú næsta muni taka upp þráðinn og vinna að þessum málum.