154. löggjafarþing — 79. fundur,  4. mars 2024.

útlendingar.

722. mál
[20:45]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég taldi mig nefnilega vita það og þekkja og bara gott að fá það staðfest að ég og hv. þm. Oddný G. Harðardóttir, og ég veit fleiri hér inni, erum alveg sammála um mikilvægi akkúrat þessa. Ég sagði líka í minni ræðu að þar stöndum við einfaldlega ekki jafnfætis hinum Norðurlöndunum því við búum ekki við þessa löggjöf sem mjög brýnt er að koma á og hangir vissulega saman við þau atriði sem boðuð voru í þeirri heildarsýn sem farið var yfir í mjög löngu máli og ég er með útprentaða fyrir framan mig, því að þetta er mjög gagnlegt að rifja upp. Það eru mörg atriði þarna sem komið er inn á og mjög ánægjulegt að heyra í þessari frétt sem ég minntist á í fyrra andsvari að þar var verið að draga fram atriði sem er þá jafnframt verið að nefna hér þó svo að stefnumótunarvinnan sé ekki búin. Þannig að það er alveg augljóst að við erum einhvers staðar í einhverjum takti hið minnsta við að færa hlutina í rétta átt og þótt hugsanlega hefði það átt að vera fyrr þá erum við samt á réttri leið. Við getum líka talið upp það sem vel er gert og ég veit að ég og hv. þingmaður og fleiri aðrir hv. þingmenn munum njóta þess að ræða þetta mál þegar það kemur til þingsins og fylgjast með framvindu og framgangi þess. En ég hvet hv. þingmann til að sjá þessa frétt sem ég vísaði í áðan.