154. löggjafarþing — 79. fundur,  4. mars 2024.

útlendingar.

722. mál
[21:07]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni og gef henni þá tækifæri aftur til að útskýra hvernig hún vill sjá kerfið. En hv. þingmaður vísar hér í þetta ákvæði sem við opnuðum á vegna Úkraínu, eins og allar Evrópuþjóðirnar gerðu, sem í rauninni þýðir að það er ekki að taka upp neinn tíma í kerfinu eins og hv. þingmaður benti einmitt á. Úkraínufólk fær hér bara leyfi til að dvelja og til að vinna í ákveðinn tíma vegna þess ástands sem uppi er í heimaríki og ég stend fyllilega á bak við það og mér heyrist að við í þessum sal séum alfarið með á því. En er þá hv. þingmaður að tala fyrir því að það fái allir sambærilega meðferð? Með öðrum orðum þá, að við tökum á móti öllum sem hingað vilja koma inn í verndarkerfið? Þar held ég að ágreiningurinn okkar liggi í því að ef fólk vill flytja til Íslands og óskar hér eftir dvalarleyfi og atvinnuleyfi og fær vinnu þá hef ég ekkert á móti því að sem flestir komi til Íslands, enda er Ísland fyrirmyndarsamfélag og fólk sækir í að búa hérna og það er frábært og við sjáum vissulega að margir hafa gert það. En verndarkerfið er fyrir þá sem eru í þörf fyrir alþjóðlega vernd þannig að fólk sem hefur fengið alþjóðlega vernd í öðru ríki er ekki í þörf á þeirri vernd. Það getur vel verið að það vilji miklu frekar búa á Íslandi og það getur vel verið að því myndi líða miklu betur á Íslandi. En er þá ekki ankannalegt að aðilar fari í gegnum verndarkerfi og verndarumsóknarkerfi á mörgum stöðum í mörgum löndum? Það er alla vega það sem þeir þingmenn sem við hittum í þessari ágætu ferð okkar í allsherjar- og menntamálanefnd ítrekuðu, að það ætti ekki að vera svoleiðis. Þetta kerfi var sett á vegna þess að þetta er ofboðslega falleg hugsun um að koma þeim til bjargar sem eru í virkilegri þörf. En ef fólk er farið að fara með umsóknir sínar til margra ríkja þá er verið að misnota það kerfi því að það er ekki spurning um að viðkomandi sé í þörf fyrir þessa alþjóðlegu vernd, ef þú ert búinn að fá verndina.