útlendingar.
Forseti. Ég hef áhyggjur af mannúðarsjónarmiðum og inngildingu fólks af erlendum uppruna. Ég velti fyrir mér hvers vegna sú hugmynd er uppi að fólk komi hingað án þess að vera í einhvers konar neyð. Við þurfum að átta okkur á því að fólk vill vera heima hjá sér. Alveg eins og ég vil vera heima hjá mér þá vilja flestir búa heima hjá sér, eða alla vega í sínu landi, vera í sínu heimalandi, vera nálægt fólkinu sem þú þekkir, vera nálægt ættingjum og vinum. Fólk vill ekkert heitar en það að veita sér og sínu fólki öryggi. Það að við séum einhvers konar seglar, mér finnst það svolítið undarleg umræða vegna þess að það sem gerir fólk öruggt er heimili þess. Það er ekki fyrr en fólk upplifir að heimili þess eða heimalandið er ekki öruggt, eða er ekki að veita því það sem það þarf til að þrífast og til að líða vel og upplifa öryggi og vellíðan, sem það leitar kannski annað. En það er ekki af einhverri léttúð. Flestir sem hafa flutt erlendis og verið erlendis vita að það er erfitt að aðlagast nýjum aðstæðum og erfitt að aðlagast nýju landi, hvað þá fyrir börn sem hafa kannski ekkert val um það hvert þau fara og hvar þau verða.
Það að breyta fjölskyldusameiningu þannig að fólk eigi erfiðara — ef ég skil þetta rétt á fólk erfiðara með að sameinast fjölskyldu sinni eða þá maka sínum. Það er ekki gott. Mér finnst bara að það ætti að vera skilningur á því að fólk er eitt í nýju landi og það er kannski með maka sinn annars staðar og hefur áhyggjur af velferð makans eða er bara í burtu frá fjölskyldumeðlimum án þess að kjósa það. Ég veit ekki alveg hver rökin á bak við þetta eru, mér finnst það líka oft vanta. Ókei, við ætlum að fara í þessa vegferð af því að, hvað? Hver eru rökin? Ég tel mig geta tekið ágætlega rökum með og á móti og get þá tekið upplýsta ákvörðun. En ef það eru ekki rök á bak við það sem er verið að setja fram þá er erfitt fyrir mig að meta hvort það sé betra eða ekki. Ég veit samt að það að vera í burtu frá fjölskyldu sinni og vera í burtu frá maka án þess að það sé það sem þú kýst sjálfur að gera getur verið mjög erfitt og haft alls konar afleiðingar fyrir einstakling sem bíður í algjörri óvissu um hvað muni verða. Það að vera í óvissuástandi skapar óöryggi og óörugg manneskja er hrædd og líður oft ekki vel. Það er kannski ekki tekið alveg inn í umræðuna, finnst mér, hvaða áhrif það að fá ekki að sameinast fjölskyldu sinni getur haft á einstaklinga.
Við vitum í dag að fjölskyldusameiningar taka allt of langan tíma, taka rosalega langan tíma. Maður hefur séð áhrifin sem það hefur haft á t.d. fylgdarlaus börn á flótta þegar það tekur mjög langan tíma að fá fjölskyldu þeirra til landsins. Það er örugglega ekki til óöruggari einstaklingur á plánetunni en fylgdarlaust barn á flótta. Við viljum að einstaklingi sem kemur hingað líði vel og hann dafni vel. Við gerum það með því að flýta frekar fyrir fjölskyldusameiningu eða gera það alla vega ekki erfiðara, af því að það er bara frekar erfitt í dag að sameinast fjölskyldu. Það tekur rosalega langan tíma og það er bara fullt af kostnaði og alls konar sem fylgir því og alls konar heilbrigðisþjónusta og ég veit ekki hvað og hvað. Ef fólk er eitt og hrætt — þetta er ekki alveg nógu vel hugsað finnst mér. Alla vega er ekki nógu vel rökstutt af hverju þetta væri betra.
Það að breyta fjölskyldusameiningu þannig að fólk eigi erfiðara með að sameinast fjölskyldum sínum er ekki gott. Það er alveg nægilega mikið lagt á einstaklinga að vera einir í nýju landi. Það verður erfiðara fyrir fólk að upplifa inngildingu í samfélaginu og það tekur lengri tíma. Það er verndandi þáttur að hafa fólk í kringum sig. Biðin er bara rosalega löng og við viljum ekki lengja þessa bið. Miðað við allt sem við vitum um tengsl og hvaða áhrif það hefur á einstaklinga að vera mikið einangraðir þá finnst mér það líka vera rök með fjölskyldusameiningu, fljótt og örugglega. Ég myndi vilja að þetta væri skoðað mjög vel og það væru skoðuð rök með þessu og á móti og hvernig það kæmi svo út. Við fyrstu sýn vitum við að það að vera með fjölskylduna sína með sér er verndandi þáttur.
Svo er rætt um að á öðrum Norðurlöndum sé verið að gera þetta og verið að gera hitt. Og maður hugsar með sér: Já, ókei, við ættum að samræma hvernig þetta er gert. En eins og hefur komið fram áður er þetta ekki samræmt. Þetta er alls konar og líka mismunandi einstaklingar sem leita til mismunandi landa og það eru alls konar ástæður fyrir því. Þarna vantar aftur rökin: Af hverju erum við að fara þessa leið? Vegna þess að — eitthvað? Það þarf að vera meira kjöt á beinunum til að hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir, hvort þetta sé góð leið og hvers vegna, og einhvern veginn meiri greiningarvinna finnst mér. Ég upplifi það alla vega þannig. Það að við séum að samræma okkur við önnur Norðurlönd eru bara ekki nógu sterk rök. Er það gott eða vont? Hentar það okkur eða hentar það okkur ekki? Þetta eru allt hlutir sem við þurfum að spyrja okkur og við þurfum að vera miklu upplýstari um áður en við tökum ákvarðanirnar, vegna þess að þegar það er búið að ákveða hlutina er það hægara sagt en gert.
Þegar ég stóð hérna fyrir ári síðan og ræddi þjónustusviptingu sem ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur stóð fyrir og samþykkti þá var sagt við þingheim: Nei, engar áhyggjur, það verður enginn á götunni. En hvað gerðist? Það er því kannski ekkert skrýtið að ég hafi mínar efasemdir um að hér sé verið að fara bestu leiðina til þess að taka á móti þessum viðkvæma hóp. Mitt innlegg í þessa umræðu er bara að við vöndum okkur, að það sé vandað til verka, að við séum ekki að auka á þyngslin, auka á neyð, auka á vanlíðan, að við séum frekar að létta undir þar sem við getum létt undir og að rökin séu á bak við okkur. Það er miklu betra að hafa rökin og mistakast heldur en: Æ, við gerðum þetta bara svona af því bara.
Það mikilvægasta sem við gerum í dag í málefnum útlendinga er að auka inngildingu. Ég hef áhyggjur, eins og fleiri sem hafa komið í ræðustól á undan mér, af meiri skautun í málefnum útlendinga. Því þykir mér ótrúlega mikilvægt að passa upp á hvernig talað er um fólk af erlendum uppruna í allri umræðunni. Ég held að flestir séu sammála um að reyna að passa upp á það. En sérstaklega í dag, þegar maður finnur einhverjar smá breytingar í umræðunni, að passa þá sérstaklega vel hvernig við ræðum um þessa einstaklinga.
Það að hægt verði að senda börn úr landi þegar þau hafa verið hér nánast í tvö ár, ef ég skil það rétt, er mikil afturför og eiginlega svolítið erfitt að koma því í orð hvað það er slæmt að sjá að þetta sé einhver vegferð sem við værum mögulega að fara í. Ár í lífi barns er nefnilega ekki það sama og ár lífi fullorðinnar manneskju. Það er bara ekki það sama að senda einhvern sem var sex ára þegar hann kom til landsins og er síðan orðinn átta ára eitthvað annað og að senda manneskju sem var 34 ára og er síðan orðin 36 ára. Það er bara ekki það sama. Það er allt annar hlutur. Það er rosalega mikið sem á sér stað í öllum þroska, öllum heilaþroska, á þessum árum. Það að upplifa öryggi, að upplifa það að vera tengdur, læra nýtt tungumál, þið getið ímyndað ykkur hversu mikið álag þetta er á börn. Þetta er rosalegt álag. Þau eru ekki orðin fullorðin og ekki fullmótuð til að taka við öllum þessum upplýsingum. Þetta getur bara haft varanleg áhrif, þannig að við þurfum klárlega að endurskoða hvort við séum að passa upp á velferð þessara barna eins og allra annarra barna sem eru á landinu.
Við þurfum líka að muna, eins og hefur komið fram, að þetta eru bara manneskjur eins og við öll og það að senda einstaklinga til Grikklands er ekki mannúðlegt. Við þurfum líka að vera svolítið raunsæ í því að við þurfum að taka þátt í þessu. Við erum partur af fólki í heiminum. Við getum ekki bara reynt að skella á hörðustu reglugerðum sem við sjáum að aðrir eru að gera, bara af því að við erum kannski smá: Bíddu, hvernig eigum við að bregðast við þessu? Ég held að við þurfum að vera rosalega róleg og anda í kviðinn og taka svolítið skynsamlegar ákvarðanir og vera líka með rökin og greininguna á bak við okkur.
Svo verð ég bara að segja, fyrst ég er hérna, að umræða um svona móttökubúðir eða endursendingarbúðir eða hvað sem fólk vill kalla þetta, mér þykir það líka vera eitthvað sem þarf að skoða rosalega vel, og hvaða áhrif það hefur á geðheilsu fólks, og sérstaklega ef börn yrðu þarna í einhvers konar endursendingarbúðum, það væri ekki gott. Ég bara vona að skoðað verði til hlítar hvaða áhrif þetta getur haft á fólk.
Það er mikilvægt að halda því á lofti að fólk kýs að vera heima hjá sér. Það langar ekki fara frá öllu og öllum sem það þekkir til að fara í óþekkt land þar sem það kann ekki tungumálið, er ekki með stuðning ættingja, heldur annars konar menningu og kulda eins og oft er hér. Hér er bara mjög kalt. Þetta fólk er örvæntingarfullt og það er hrætt. Við þurfum að fara eins mannúðlegar leiðir og við getum til að leggja okkar af mörkum. Það felur ekki í sér að gera fjölskyldusameiningu erfiðari, að það megi senda börn eftir tæp tvö ár til annarra landa og fara þá í vegferð að verja ekki réttindin til að hafa réttindi.