154. löggjafarþing — 79. fundur,  4. mars 2024.

útlendingar.

722. mál
[21:49]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla nú bara að hafa þetta stutt. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna, afar margt áhugavert sem þar kom fram. Ég held að um margt höfum við áhuga á sömu málum, mér heyrist það. Mig langar að spyrja hvort hv. þingmaður hafi skoðað þessa heildarsýn sem var boðuð og kynnt hér á vegum ríkisstjórnarinnar og ég gerði að umtalsefni í minni ræðu hér fyrr í dag sem mikilvæga. Ég tel mikilvægt að reyna að horfa breitt á þessum mál, kannski ekki minnst til að forðast það að við förum í frekari átt til skautunar sem mér hefur fundist bera á í samfélaginu að undanförnu og tel vera mikið mein og tel okkur hér geta hjálpast að við að reyna að vinna gegn. Það er ekki þar með sagt að við getum ekki haft skiptar skoðanir um málin, bara að við reynum að hjálpast að við að reyna að sporna gegn henni. Við sjáum þróunina í löndunum í kringum okkur en enn sem komið er er enginn flokkur á Íslandi sem skilgreinir sig sem hægri öfgaafl sem hefur svolítið dregið þessa skautunarumræðu vítt og breitt í Evrópu og við sjáum líka teikn um á Norðurlöndunum, nágrönnum okkar sem við berum okkur saman við. Mig langaði bara að spyrja hv. þingmann að þessu, því að ég lofaði að hafa þetta stutt, hvort hann hefði kynnt sér í rauninni þá yfirgripsmiklu punkta sem dregnir eru fram varðandi vinnuna fram undan og það sem þarf að leggja af mörkum svo að við náum utan um þetta í stóru heildarsamhengi. Ég spyr af því að hv. þingmaður kom inn á ýmislegt er varðar börn, kom líka inn á búsetuúrræðisumræðuna sem er sannarlega ekki til umræðu hér en er ávörpuð hjá spretthópi í heildarsýninni. Hefur hv. þingmaður kynnt sér þetta og hefur á því einhverjar skoðanir sem hann vill deila með okkur hér?