154. löggjafarþing — 79. fundur,  4. mars 2024.

útlendingar.

722. mál
[21:51]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Nei, ég var ekki búin að kynna mér þessa heildarsýn en ég er búin að heyra mikið í dag, það hefur verið rætt um hana og ég væri mjög til í að kynna mér hana og skoða. Ég hugsa þetta þannig að við viljum öll gera vel og við viljum fara í átt að sömu markmiðum og við viljum að fólk sem kemur hingað líði vel og við viljum líka að fólk sem fer frá okkur hafi góða reynslu. Það er auðvitað það sem við erum öll væntanlega að stefna að. En við erum kannski með ólíkar hugmyndir um hvernig við gerum það og hvernig við pössum að það sé hugsað um alla hluti. Mér finnst mjög áhugavert að heyra að það sé kannski tekið á þessu líka, andlegri heilsu og öðru, ef það er tekið á því, og hvernig áhrif það gæti haft á einstaklinga að fara í svona búðir, ef búið er að skoða það. Ef það er í þessari heildarsýn væri það mjög áhugavert fyrir mig að sjá.