154. löggjafarþing — 80. fundur,  5. mars 2024.

Störf þingsins.

[13:41]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Það lifir enginn lengi á hrísgrjónum og núðlusúpu einni saman. Hvað á maður að segja við fólk sem lendir í þeirri aðstöðu vegna stökkbreyttrar leigu á almennum leigumarkaði að það er á bið eftir félagslegu húsnæði og ræður ekki lengur við leigu á almennum markaði, hefur ekki efni á henni og heilsu farið að hraka, en sami einstaklingur hefur ekki einu sinni efni á því að fara til sjúkraþjálfara vegna þess að ríkisstjórnin og heilbrigðisráðherra draga lappirnar í að semja við sjúkraþjálfara, hafa dregið þær núna í mörg ár? Hvað er að þessu kerfi okkar sem er svo mannfjandsamlegt að það er að valda fólki óbætanlegu heilsutjóni?

Á sama tíma var umræða í Silfrinu í gær um stöðu heilbrigðiskerfisins, um það hvort fólk kæmist til heimilislæknis. Þeir sem voru þar virtust allir vera á því að þeir gætu fengið heimilislækni ef þeir þyrftu á því að halda. En ég er búinn að vera að hitta fólk sem fór til heimilislæknis og ætlaði að reyna að fá tíma. Það tók ekki vikur, það tók mánuði að fá tíma hjá heimilislækni og þegar viðkomandi loksins komst til heimilislæknisins þá sagði heimilislæknirinn: Þú þarft að fara til sérfræðings, þú ert alvarlega veikur. Hvað tók þá við? Jú, þrisvar til fjórum sinnum lengri bið eftir sérfræðingnum heldur en var beðið eftir heimilislækni. Þegar viðkomandi fékk loksins tíma hjá sérfræðingnum, hvað skeði þá? Sérfræðingurinn horfði á viðkomandi og sagði: Heyrðu, af hverju komstu ekki fyrir löngu síðan? Þú ert á síðasta snúning til að fá lækningu. Viðkomandi var að verða fyrir tjóni, líkamlegu og heilsufarslegu tjóni, vegna þess kerfis sem við höfum byggt upp, sem ríkisstjórnin ber ábyrgð á. Er ekki kominn tími til þess að ríkisstjórnin hysji upp um sig buxurnar og sjái til þess að þeir sem þurfa heilbrigðisþjónustu á Íslandi fái hana?