Störf þingsins.
Forseti. Aðeins meira um stafrænt kynferðisofbeldi sem hv. þm. Eva Sjöfn Helgadóttir talaði um hér áðan. Það eru nefnilega nýjar víddir á þessu máli að birtast okkur þessa dagana, þ.e. hvað varðar gervigreind og stafrænt kynferðisofbeldi. Í því dæmi sem var rakið áðan þar sem þolendur upplifa einhverja skömm eða kenna sjálfum sér um að hafa gert eitthvað rangt af því að þeir deildu trúnaðarmálum með öðrum — í tilvikum þar sem gervigreind er notuð þá eru tilfinningarnar aðrar. Það er væntanlega ákveðin ósanngirni og óréttlæti af því að viðkomandi kemur hvergi þar nálægt. Þar er bara einhver þriðji aðili sem býr til myndir af hverjum sem er, hvar sem er, hvernig sem er, mynd eða myndband. Það mun breyta því, held ég, hvernig við nálgumst þennan málaflokk þegar allt kemur til alls. Þegar hver sem er getur gert hvað sem er hvað myndefni varðar þá munum við óhjákvæmilega leggja annars konar trúnað á það hvað myndefnið sýnir okkur. Ég held að það sé dálítið nauðsynlegt að við áttum okkur á því hvað það þýðir þegar hver sem er getur gert hvað sem er með myndir og myndbönd. Við þurfum að læra hvað það þýðir að horfa bara á hvaða mynd eða myndband sem er í því samhengi.
Þetta er ekkert nýtt. Þetta hefur viðgengist í tískuljósmyndun lengi þar sem módelum hefur verið breytt; lýti fjarlægð og fótleggir gerðir grennri og lengri og ýmiss konar fölsun er í raun á útliti fólks. (Gripið fram í.) Það er ekkert nýtt en það er að verða þeim mun stærra vandamál núna á næstunni. Gervigreindin eins og hún er nær einmitt miklu, miklu lengra, svo langt að við verðum eiginlega að átta okkur á því að framtíðin er á þann veg að myndin sýnir ekki raunveruleika lengur. (Forseti hringir.) Og hvernig munum við t.d. bregðast við í málum eins og varðandi sæmdarkúgun þegar það er staðan?