154. löggjafarþing — 80. fundur,  5. mars 2024.

Störf þingsins.

[13:57]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Við gleðjumst yfir því í dag að 72 einstaklingar frá Gaza eru á leiðinni heim, flest af þeim eru börn. Þetta ferli hefur staðið yfir síðustu misseri og vil ég koma á framfæri þökkum til starfsmanna utanríkisráðuneytis og félags- og vinnumarkaðsráðuneytis fyrir þrotlausa vinnu við að koma fólkinu í öruggt skjól. Hópurinn bætist við það fólk sem öflugir sjálfboðaliðar með stuðningi almennings hafa nú þegar aðstoðað við að komast heim. Við skulum öll taka vel á móti þeim.

Virðulegi forseti. Flokksráðsfundur Vinstri grænna ályktaði um helgina um sinn skýra vilja til að greiða framlög til flóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna í Palestínu. Ísland á ekki að taka þátt í óréttmætri hóprefsingu annarra vestrænna ríkja sem bitnar á lífsbjörg milljóna almennra borgara. Ályktun Alþingis frá því seint á síðasta ári er skýr; ríkisstjórnin á að beita sér fyrir mannúðaraðstoð á svæðinu, og mikilvægt er að árétta það. Rödd Íslands þarf að heyrast á alþjóðavettvangi þar sem þess er krafist að morðárásum á saklaust fólk verði tafarlaust hætt og ber að fordæma ítrekuð hryðjuverk og stríðsglæpi sem nú eiga sér stað á Gaza. Tekið verði undir með þeim þjóðríkjum sem vilja að aðskilnaðarstefna, stríðsglæpir og þjóðarmorð verði tekin fyrir hjá viðeigandi dómstólum alþjóðasamfélagsins.

Við þetta vil ég bæta að það er til skammar fyrir bandarísk stjórnvöld að þau ítrekað beiti neitunarvaldi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um tafarlausa stöðvun átaka á Gaza. Allar tilraunir Sameinuðu þjóðanna til að koma á friði á svæðinu hafa stjórnvöld í Bandaríkjunum að engu gert. Þjóðir heims verða að stöðva yfirstandandi stríðsglæpi og þjóðarmorð á Gaza.