Störf þingsins.
Herra forseti. Við biðlum til ykkar, kæru aðstandendur, að aðstoða okkur við að halda íbúðunum hreinum og fínum, segir í tölvupósti frá Sóltúni, öldrunarþjónustu, til aðstandenda íbúa á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði núna rétt fyrir tveimur árum síðan. Með tölvupóstinum tilkynnti Sóltún aðstandendum íbúa að búið væri að útvista þrifum á hjúkrunarheimilinu til ræstingafyrirtækisins Sóla, sem þeir sennilega eiga sjálfir, ég veit það ekki, og var óskað eftir aðstoð þeirra við þrifin til framtíðar. Áfram heldur í bréfinu til aðstandenda: Það getur verið góð dægrastytting að þurrka af og laga til með sínum ástvinum. Tölvupósturinn var sendur eftir að eigendur Sóltúns höfðu tekið 2.000 millj. kr. út úr fyrirtækinu sem á og rekur hjúkrunarheimilin Sóltún og Sólvang í kjölfar þess að þeir seldu fasteignina í Sóltúni til fasteignafélagsins Regins, sem ég hef hins vegar alltaf kallað græðgisvætt leigufélag, fyrir 3,8 milljarða kr. árið 2020. Fasteignina leigðu þau síðan af kaupandanum og réðust í niðurskurð í rekstrinum til að mæta leigukostnaði — að sjálfsögðu.
Hversu lágt er hægt að leggjast, herra forseti, til að níðast á fullorðnu fólki sem er að ganga sitt síðasta æviskeið? Það eru engin takmörk fyrir því. Þarna var t.d. sagt upp 12 starfsmönnum, undir eins, þjónustan stórlega skert, jafnvel hlandblettir á gólfum og látnir liggja þar dögum saman, enginn til að þrífa og skilaboðin voru: Þú ert ekki á neinum sérsamningi hér þó að það hafi orðið einhver slys, blettir í rúmfötum, blettir í fötum og óhreinindi. Það á hreinlega að taka allt svona af svona einstaklingum. Það er ekki hægt að láta koma svona fram við fullorðið fólk. En núna stefnir í frekari einkavæðingu nákvæmlega í þessa átt og ég held að hæstv. heilbrigðisráðherra muni sjá það ef hann skoðar grundigt það sem ég er að vitna í hér að það er óðs manns æði að ætla að græðgisvæða öldrunarheimili og hjúkrunarheimili landsins.