Störf þingsins.
Herra forseti. Það var mikill léttir þegar við fréttum að 72 hefðu verið leyst út af Gaza-svæðinu af íslenskum stjórnvöldum, 72 einstaklingar sem dag hvern bjuggu við lífshættu. En hugur okkar er náttúrlega hjá þeim 13 sem enn eru föst á Gaza en eru á lista stjórnvalda, og þeim hundruðum þúsunda sem eru daglega í lífshættu vegna miskunnarlausra árása Ísraelshers. Það lá hins vegar fyrir strax í byrjun desember þessi listi 128 manneskja sem höfðu fengið samþykkt að sameinast fjölskyldumeðlimum hér á Íslandi. Í desemberbyrjun hefði utanríkisþjónusta Íslands getað sett þetta verkefni af stað sem kláraðist fyrst núna þremur mánuðum síðar. Hversu mörg á þessum lista ætli hafi slasast eða látist vegna aðgerðaleysis ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur? Mér fannst ákveðið afrek hjá ráðherrunum sem tilkynntu þessa lausn þegar þeir náðu að segja það án þess að nefna þátt sjálfboðaliðanna sem höfðu unnið verk stjórnvalda að hálfu leyti. Sjálfboðaliðar fóru til Egyptalands og leystu út af Gaza ríflega 50 manns sem stjórnvöld hunsuðu á þeim tíma. Því fólki ber að þakka þrotlaust starf, fjárútlát og annan stuðning til að bjarga lífum.
En ríkisstjórnin má ekki láta hér við sitja. Það þarf að hætta að fjársvelta Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna. Ég tók eftir því að hv. þm. Jódís Skúladóttir las upp ályktun flokksráðs Vinstri grænna þar sem ríkisstjórnin var hvött til að hætta að taka þátt í því sem það kallar óréttmæta hóprefsingu annarra vestrænna ríkja með þessu fjársvelti. (Forseti hringir.) Ég man ekki, herra forseti, eftir öðrum dæmum þess að flokkur forsætisráðherra saki bara berum orðum utanríkisráðherra um að vera stríðsglæpamaður, en það er það sem óréttmæt hóprefsing þýðir. (Forseti hringir.) Ég tek hins vegar undir hvatningu þeirra til að hætta þessu fjársvelti (Forseti hringir.) og bendi á að Ísland er að verða einangrað í ljósi þess að Evrópusambandið boðaði í síðustu viku að stórauka framlög (Forseti hringir.) til Palestínuflóttamannaaðstoðarinnar. Svo þarf auðvitað að beita sér af fullu afli fyrir vopnahléi og friði og (Forseti hringir.) þá dugar ekki bara eitt símtal til utanríkisráðherra Ísraels, eins og virtist vera nóg til að leysa 72 Palestínumenn úr prísundinni.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að ræðutími í störfum þingsins er tvær mínútur en ekki þrjár mínútur.)