154. löggjafarþing — 80. fundur,  5. mars 2024.

rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.

726. mál
[14:11]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu. Ansi virðulegur titill. Það hefur átt sér töluverðan aðdraganda, sem ég mun fara yfir hér á eftir. Þetta frumvarp hefur það að markmiði að lögfesta heildarlög um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu. Sá lagarammi sem fyrir er er kominn mjög til ára sinna en þar er um að ræða lög frá árinu 1991 að meginstofni til. Frumvarpið miðar að því markmiði að við séum að ganga í takt við alþjóðlega þróun á þessu löggjafarsviði en langtum flest ríki á Evrópska efnahagssvæðinu og aðildarríki Efnahags- og framfarastofnunarinnar, sem við þekkjum sem OECD, hafa sett sér löggjöf sambærilega þeirri sem lögð er til með frumvarpinu. Mikilvægt er að hafa í huga að slíkri fjárfestingarýni er ekki ætlað að takmarka erlendar fjárfestingar almennt heldur er markmiðið að ganga úr skugga um að einstakar erlendar fjárfestingar á afmörkuðum samfélagssviðum leiði ekki af sér öryggisógn, þ.e. að erlendar fjárfestingar í mikilvægum innviðum og annarri samfélagslega mikilvægri starfsemi sé í samræmi við þjóðaröryggi og allsherjarreglu. Má færa rök fyrir því að öflug löggjöf um fjárfestingarýni sé til þess fallin að auka traust á íslensku fjárfestingarumhverfi til hagsbóta fyrir atvinnulífið og samfélagið og geti talist sjálfsagður þáttur í lagaumhverfi ríkja um erlendar fjárfestingar.

Ástæða þess að sú sem hér stendur flytur þetta mál er öryggisþáttur þess. Eins og hv. þingmönnum er kunnugt var þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland samþykkt 2016. Henni var síðar breytt með nýrri ályktun fyrir örfáum árum. Í stefnunni er lögð áhersla á að vernda virkni mikilvægra innviða og styrkja áfallaþol samfélagsins gagnvart hvers kyns ógn við líf og heilsu fólks, umhverfi, eignir og innviði. Þar er vísað til ógna sem tengjast náttúruhamförum, fæðu- og matvælaöryggi, heilbrigðisöryggi og farsóttum, hryðjuverkum og skipulagðri brotastarfsemi, svo sem ógn við stjórnskipun, stjórnkerfi, fjarskipti, orkuöryggi og fjármála- og efnahagsöryggi. Þjóðaröryggisráð hefur það hlutverk að fylgja eftir markmiðum þjóðaröryggisstefnu og ég lít svo á að þetta frumvarp sé í miklu samræmi við þá stefnu og mæli því fyrir málinu, ekki síst sem formaður þjóðaröryggisráðs.

Opnu og alþjóðlegu viðskiptaumhverfi eins og því sem við búum við fylgja nýjar og síbreytilegar öryggisáskoranir. Það hefur leitt til þess að á undanförnum árum hefur fjölgað mjög ört í hópi þeirra aðildarríkja OECD sem sett hafa heildstæða lagaumgjörð um fjárfestingarýni sem er sambærileg við þá sem lögð er til með frumvarpi þessu. Helstu drifkraftar þeirrar þróunar eru aukinn samhljómur meðal þessara ríkja um að gjalda þurfi varhug við hvers kyns ógn við grundvallaröryggi sem skapast getur af fjárfestingum óvinveittra eða áhættusamra aðila nema hvort tveggja sé, einkum í grunnkerfum og öðrum viðkvæmum samfélagsgeirum. Við vinnslu þessa frumvarps hefur verið tekið mið af þessari þróun meðal ríkja OECD á sviði fjárfestingarýni.

Stefnumörkun Evrópusambandsins á sviði fjárfestingarýni birtist í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um almenna umgjörð um reglur um fjárfestingarýni í löggjöf aðildarríkja sambandsins. Að minnsta kosti 22 aðildarríki ESB hafa þegar sett sér löggjöf um fjárfestingarýni, þeirra á meðal eru Danmörk, Finnland og Svíþjóð. Noregur hefur farið þá leið að setja sér heildstæð lög um þjóðaröryggi þar sem m.a. er fjallað um fjárfestingarýni. Í mörgum löndum utan ESB og EES er einnig löng hefð fyrir fjárfestingarýni, til að mynda í Bandaríkjunum, Japan, Bretlandi og Ástralíu, svo einhver dæmi séu nefnd.

Við vinnslu þessa frumvarps höfum við tekið nokkuð ítarlegt yfirlit saman um samanburð milli Íslands og annarra Norðurlanda og Bretlands og þar má sjá að þetta lagaumhverfi er í mjög mikilli þróun. Eins og ég nefndi hér áðan er gildandi öryggisregla okkar laga um erlendar fjárfestingar að uppistöðu til í lögum nr. 34/1991, sem hv. þingmenn þekkja vel. Í Danmörku voru sérlög um rýni sett 2021, þeim var breytt 2023. Í Noregi er fjallað um fjárfestingarýni í 10. kafla öryggislaganna sem ég nefndi hér áðan frá 2019, en þeim var breytt 2023. Svíþjóð setti sín sérlög um fjárfestingarýni árið 2023. Finnland hefur haft slík sérlög frá 2012 en breytti þeim 2020 og Bretland er með sérlög um rýni frá 2022. Það er ekki nákvæmt samræmi milli landa hvað heyrir undir lögin, þ.e. hvaða svið heyra undir lögin, en þau leitast öll við að skilgreina viðkvæm svið. Þar eru yfirleitt og nánast alltaf mikilvægir innviðir hluti af þeim viðkvæmu sviðum en síðan má finna ákveðnar breytur milli landa hvað nákvæmlega er skilgreint og fer það líka eftir aðstæðum í hverju ríki fyrir sig.

Ég vil nefna það að þessi málefni hafa verið til umræðu á fjölmörgum af þeim fundum sem ég hef setið í embætti mínu sem forsætisráðherra og mikilvægi þess að ríki sem eru í formlegu samstarfi, hvort sem er innan Evrópska efnahagssvæðisins eða Atlantshafsbandalagsins, setji sér slíkar reglur. Í grunnstefnu Atlantshafsbandalagsins frá 2022 er í þessu sambandi vakin athygli á mikilvægi þess að aðildarríki dragi úr þýðingarmiklum veikleikum og fækki sviðum þar sem þau eru háð öðrum, til að mynda hvað varðar mikilvæga innviði, aðfangakeðjur, orkubirgðir og heilbrigðiskerfi. Þá eru líka í þessari grunnstefnu höfð uppi varnaðarorð um að andstæðingar bandalagsins leitist við að nýta sér það hve opin aðildarríkin eru, samtengd og stafræn. Þessi mál hafa því svo sannarlega verið mikið til umræðu í öllu því alþjóðasamstarfi sem við eigum og tökum þátt í.

Það er ástæðulaust að ætla annað en að lítið opið hagkerfi eins og Ísland geti verið útsett fyrir ógn til að mynda sem tengist fjármagnsflutningum á vegum áhættusamra aðila inn í hagkerfið. Af þessum sökum tel ég brýnt að Ísland búi yfir viðhlítandi löggjöf um rýni fjárfestinga sem stenst samanburð við sambærilega löggjöf í þeim sívaxandi hópi ríkja OECD og Evrópusambandsins sem líta á fjárfestingarýni sem mikilvægan og raunar sjálfsagðan öryggisventil í lagaumhverfi fjárfestinga milli ríkja. Mér finnst mikilvægt og vil draga það fram að við skerum okkur ekki úr í því samstarfi sem við erum í hvað þetta varðar því það getur dregið úr trúverðugleika íslensks hagkerfis ef við erum með ófullnægjandi löggjöf um fjárfestingarýni.

Virðulegi forseti. Eins og ég nefndi hér áðan er lögð til heildstæð rýnilöggjöf í þessu frumvarpi sem við lítum svo á að sé í samræmi við þá réttarþróun sem hefur átt sér stað innan OECD og ESB. Sú heildstæða rýni leysir af hólmi gildandi öryggisákvæði í 12. gr. laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, sem er óhætt að segja að sé komið til ára sinna, hafi ekki fylgt samfélagsþróun og er um margt fábrotið og óljóst.

Í þessu frumvarpi er lagt til að tilteknar tegundir erlendra fjárfestinga í íslenskri atvinnustarfsemi á skilgreindum viðkvæmum samfélagssviðum verði háðar tilkynningarskyldu til þess ráðherra sem fer með málefni erlendra fjárfestinga. Á grundvelli slíkrar tilkynningar mun ráðherra rýna viðkomandi fjárfestingu út frá því hvort af henni geti stafað ógn við þjóðaröryggi eða allsherjarreglu samkvæmt nánari matsviðmiðum í frumvarpinu. Rýni skal lokið innan knapps tímafrests sem mun jafnan vera 10–25 virkir dagar eftir því á hvaða sviði fjárfestingin er. Málsmeðferðartími getur einungis orðið lengri en 25 virkir dagar í undantekningartilvikum og má jafnframt ætla að mörgum málum mætti ljúka vel innan 25 daga frestsins ef vel er haldið á málum. Ég bendi á að þessi málsmeðferðarfrestur er styttri en almennt gengur og gerist í löggjöf um fjárfestingar á öðrum Norðurlöndum. Það þarf að ræða það í þinglegri meðferð hvort við metum það svo að frestur ætti að vera lengri, en þetta markmið sem ég legg til snýst um það að við séum ekki að reisa óþarfahindranir með þessari rýni og séum að leggja okkur fram um að hún gangi fyrir sig með eins skilvirkum hætti og mögulegt er.

Í 3. gr. frumvarpsins eru síðan skilgreind sex viðkvæm samfélagssvið sem lagt er til að falli undir reglur frumvarpsins um skyldubundna rýni. Það þýðir að erlendar fjárfestingar á þessum sex viðkvæmu sviðum verða sjálfkrafa tilkynningar- og rýniskyldar áður en frá þeim er gengið. Tilkynningarskyldan hvílir þá á þeim erlenda aðila sem hlut á að máli hverju sinni.

Ég ætla aðeins að gera grein fyrir þeim sex samfélagssviðum sem er lagt til að séu skilgreind sem viðkvæm svið og þar með falli undir reglu um tilkynningarskyldu. Í fyrsta lagi er um að ræða mikilvæga innviði á sviði orku, samgangna, fjarskipta, fjármálakerfis, heilbrigðiskerfis og á fleiri sviðum sem lýst er í frumvarpinu. Í öðru lagi er um að ræða starfsemi sem varðar útvegun og framleiðslu á mikilvægum aðföngum, þar með talið í tengslum við orku eða hráefni eða vegna fæðuöryggis. Í þriðja lagi er vísað til nýtingar vatnsorku, jarðvarma, vindorku, námavinnslu og annarra jarðefna í þjóðlendum. Þessi liður er sem sagt takmarkaður við þjóðlendur. Það nær ekki til alls ríkislands eða annarra landareigna en eins og kunnugt er spanna þjóðlendur ríflega 39% af flatarmáli landsins. Í fjórða lagi er vísað til starfsemi sem lýtur að meðhöndlun mikilvægra trúnaðarupplýsinga og verulegs magns viðkvæmra persónuupplýsinga ásamt þjónustu á sviði netöryggis mikilvægra innviða. Í fimmta lagi nær tilkynningarskyldan yfir framleiðslu eða þróun á hlutum með tvíþætt notagildi samkvæmt lögum um afvopnun, takmörkun vígbúnaðar og útflutningseftirlit. Í sjötta lagi fellur hér undir framleiðsla eða þróun á annars konar mikilvægri tækni, svonefndri djúptækni. Um þetta er fjallað með miklu nánari hætti í greinargerð frumvarpsins hvað nákvæmlega fellur undir þessi svið.

Þessi sex viðkvæmu svæði sem ég hef talið upp og afmörkunin á þeim sem er lögð til byggist á umfangsmikilli greiningarvinnu og samráði bæði innan sem utan stjórnkerfisins, sem er fjallað um sömuleiðis í greinargerðinni, og hefur þessi vinna í raun staðið yfir allt frá hausti 2021.

Við mótun viðkvæmu sviðanna og ákvæða frumvarpsins hefur að öðru leyti verið höfð rík hliðsjón af gildissviði rýnilöggjafar á öðrum Norðurlöndum og víðar. Frumvarpið hefur að geyma ítarlegan samanburð við löggjöf annarra Norðurlanda um fjárfestingarýni eins og ég vísaði til áðan og ég tel að sá samanburður sýni glögglega að ákvæði frumvarpsins fylgja náið erlendri réttarþróun á þessu sviði og þau ganga síst lengra. Má þar nefna að fjárfestingarýni samkvæmt frumvarpinu lýtur í öllum tilvikum að fjárfestingu erlendra aðila í tilteknum innlendum eignum eða atvinnurekstri. Ákvæði frumvarpsins leggja ekki sambærilegar skyldur á fjárfesta sem staðsettir eru hér á landi. Þetta er ólíkt til að mynda breskum, norskum og sænskum lagareglum um fjárfestingarýni sem gilda að uppistöðu til um allar fjárfestingar óháð þjóðerni fjárfestis. Þetta er spurning og þetta er álitamál en ég taldi að í ljósi þess að hér erum við að leggja til verulega breytingu á umhverfi fjárfestinga á Íslandi þá væri rétt að stíga þetta skref áður en lengra væri gengið. Ég heyri það líka í samtölum við mína kollega og sé það í þeirri löggjöf sem ég hef verið að fylgjast með á undanförnum árum að það eru tíðar breytingar á þessari löggjöf til þess hreinlega að mæta því síbreytilega öryggisumhverfi sem við búum við. Það er því ekki útilokað, ef Alþingi auðnast að stíga þetta skref sem er algjörlega nauðsynlegt til að byggja upp trúverðugt umhverfi í kringum erlendar fjárfestingar, og er ekki ólíklegt að við munum þurfa að endurskoða það innan fárra ára og meta hvernig til hefur tekist.

Það er gert ráð fyrir að viðkvæmu sviðin í 3. gr. frumvarpsins verði nánar útlistuð í reglugerð. Er það sama fyrirkomulag og byggt er á í dönskum lögum um fjárfestingarýni, þ.e. lögin útlista sviðin í meginatriðum og síðan er sett reglugerð þar sem þau eru skilgreind með ítarlegri hætti. Lögð er áhersla á að ráðherra gæti hófs við nánari upptalningu viðkvæmra sviða í reglugerðinni og viðhafi samráð við önnur hlutaðeigandi ráðuneyti við útfærslu hennar.

Í 4. og 5. gr. frumvarpsins eru síðan tilgreindar þær tegundir fjárfestinga og viðskiptasamninga milli erlendra og innlendra aðila sem verða háðar skyldurýni samkvæmt frumvarpinu en eins og ég nefndi áðan er hún bundin við fjárfestingar frá erlendum aðilum, hvort heldur innan eða utan EES-svæðisins. Í stuttu máli er lagt til að erlendar fjárfestingar sem nema 10% eða meira af atkvæðisrétti í viðkomandi fyrirtæki séu tilkynningarskyldar. Tilkynningarskylda virkjast einnig ef fjárfestir sem á hlut í fyrirtæki eykur síðar við atkvæðisrétt sinn umfram tiltekin prósentumörk. Hér er í grunninn um að ræða sams konar reglur og gilda í dönskum lögum um fjárfestingarýni sem sett voru 2021. Til samanburðar, svo við vitnum í gildandi lög, má nefna að leita þarf samþykkis Seðlabanka Íslands fyrir kaupum á virkum eignarhlut í fjármálafyrirtæki en virkur eignarhlutur er skilgreindur sem 10% atkvæðisréttar eða meira í fyrirtækinu.

Þar sem tilkynningarskyldu um fjárfestingar sleppir er gert ráð fyrir að ráðherra geti gripið til frumkvæðisrýni ef nauðsyn krefur vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu. Um er að ræða frumkvæðisheimild sem nær þá til annarra fjárfestinga en þeirra sem ber ávallt að tilkynna ráðherra og ég rakti hér áðan. Frumkvæðisrýni er hins vegar bundin við fjárfestingar af ákveðinni stærð eða 25% af atkvæðisrétti í fyrirtæki. Þá eru heimildinni sett tímatakmörk sem miðast við fimm ár aftur í tímann á sama hátt og gildir í dönskum rétti.

Auk fjárfestinga í fyrirtækjum hefur frumvarpið að geyma reglur um rýni fjárfestinga erlendra aðila í íslenskum fasteignum, bæði innan og utan þéttbýlis, sem skiptast jafnframt í reglur um skyldurýni annars vegar og frumkvæðisrýni hins vegar. Tilvik sem falla undir skyldurýni eru afmörkuð í 7. gr. frumvarpsins og miðast þá við fasteignir sem eru skilgreindar með sérstakt verndargildi, t.d. vegna nálægðar við öryggis- og varnarsvæði. Þá falla hér undir tilvik þar sem erlent ríki eða stjórnvald hyggst fjárfesta í fasteign. Þar sem þessum tilvikum sleppir tekur svo við heimild til frumkvæðisrýni samkvæmt 8. gr. frumvarpsins.

Í IV. kafla frumvarpsins er síðan að finna ítarlegar reglur um framkvæmd rýninnar, m.a. form tilkynninga, gagnaöflun, samráð, tímafresti og matsviðmið sem ráðherra horfir til við rýnina. Ég var búin að nefna tímafrestina sem gilda um rýnina, þ.e. almennt 10–25 virka daga eftir tegund fjárfestingar, og ítreka að þetta eru hóflegir frestir sem miða bæði við það sem almennt gengur og gerist í íslenskri stjórnsýslu og einnig samanborið við erlenda rýnilöggjöf. Með þessu vil ég undirstrika mína áherslu á það að fjárfestingarýni á að ganga hratt og örugglega fyrir sig. Hún á ekki að koma niður á möguleikum íslenskra fyrirtækja til að leita fjármögnunar erlendis frá. Þá ber að leggja ríka áherslu á að einungis kemur til íhlutunar ráðherra í fjárfestingu ef rýni leiðir í ljós að hún geti ógnað þjóðaröryggi eða allsherjarreglu sem meginmarkmið frumvarpsins er að standa vörð um. Sé slík ógn talin vera til staðar hefur ráðherra þann kost að samþykkja ráðstöfunina með því að setja skilyrði sem miða að því að koma í veg fyrir eða draga úr slíkri ógn en dugi það ekki til getur ráðherra gripið í þann neyðarhemil að leggja bann við framkvæmd fjárfestingarinnar. Ég vil minna á að í gildandi lagaumhverfi, í lögunum frá 1991, eru engar heimildir til þess að setja til að mynda skilyrði við erlendri fjárfestingu. Þar er eingöngu hægt að banna. Slíkt inngrip myndi ég telja heyra til algerra undantekninga ef marka má reynslu okkar af slíkum hemli en sömuleiðis reynslu annarra ríkja af framkvæmd rýnilöggjafar.

Frú forseti. Ekki er fyrir að fara gögnum eða erlendum rannsóknum, til að mynda frá OECD, sem sýna fram á að löggjöf um rýni erlendra fjárfestinga hafi neikvæð áhrif á erlenda fjárfestingu í viðkomandi ríkjum á heildina litið. Mikilvægt er að hafa í huga þegar fjallað er um frumvarpið að það byggir á þeirri grunnforsendu að einungis reyni á slíka löggjöf í tilvikum sem kunna að varða þjóðaröryggi eða allsherjarreglu. Með hliðsjón af réttarframkvæmd erlendis má gera ráð fyrir því að þorri tilkynningarskyldra ráðstafana verði samþykktur án íhlutunar. Það má því ætla að áhrifin að þessu leyti verði fyrst og fremst fólgin í seinkun á framkvæmd viðskipta á meðan mál er til meðferðar. Því er lagt upp með þessa skömmu tímafresti til að ljúka frummeðferð tilkynninga og taka ákvarðanir um hvort frekari rýni sé þörf. Það er ekki sjálfgefið að fullnýta þurfi þá fresti sem mælt er fyrir um í frumvarpinu heldur verður væntanlega hægt að afgreiða einfaldari eða umfangsminni mál vel innan þeirra. Þá flýtir það að sjálfsögðu fyrir meðferð máls ef erlendur aðili sinnir markvissri upplýsingagjöf til ráðherra. Erlendur aðili hefur því í hendi sér að stuðla að skjótum framgangi mála.

Því tel ég að þetta frumvarp og ákvæði þess muni ekki draga úr mögulegri erlendri fjárfestingu hér á landi á þeim sviðum sem falla undir áhrifasvið frumvarpsins. Á móti kemur að jákvæð áhrif frumvarpsins, sem felast í bættri vernd þjóðaröryggis og allsherjarreglu á þeim sviðum sem frumvarpið tekur til, vegi miklum mun þyngra en hugsanleg neikvæð áhrif. Samþykkt þess mun leiða til þess að lagaumhverfi hér á landi verður líkara því sem almennt gengur og gerist í þorra aðildarríkja OECD og víðar eins og ég hef rakið. Sú þróun ætti öðru fremur að vera til þess fallin að auka traust á íslensku fjárfestingarumhverfi út á við, m.a. meðal allra þeirra ríkja sem við eigum í samstarfi við sem hafa lagt rækt við þennan málaflokk á undanförnum árum. Aukinn skýrleiki og gagnsæi í lagaumhverfi hlýtur jafnframt að vera fjárfestum og atvinnulífinu til hagsbóta en óhætt er að segja að þessi löggjöf, verði hún samþykkt, mun vera miklum mun skýrari en sú löggjöf sem er í gildi frá árinu 1991.

Vissulega má gera ráð fyrir því að þetta frumvarp hafi ákveðin fjárhagsáhrif sem felast þá fyrst og fremst í því að styrkja það ráðuneyti sem mun fara með umsjón laganna, þ.e. menningar- og viðskiptaráðuneytið, vegna þess sem fellur til við mannafla, rekstur og aðkeypta þjónustu. Þá er áætlað að ekki minna en 75% af þeim raunkostnaði sem fellur á ríkissjóð vegna lagasetningarinnar skili sér aftur í formi gjaldtöku af þeim aðilum sem rýnin beinist að. Þannig er í frumvarpinu gert ráð fyrir heimild til að taka þjónustugjald sem miðist við kostnað við framkvæmd. Sú gjaldtaka kann að nema 10–30 millj. kr. á ársgrunni en þá er gert ráð fyrir að áform erlendra aðila um fjárfestingar á Íslandi verði svipuð og verið hefur undanfarin 15 ár. Þær forsendur eru eðli máls samkvæmt mjög næmar fyrir frávikum þar sem eitt verkefni getur gerbreytt þessari mynd.

Við vinnslu þessa máls var haft umfangsmikið samráð. Haustið 2021 setti ég á laggirnar nefnd þar sem sátu fulltrúar sex ráðuneyta, þ.e. dómsmálaráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, innviðaráðuneytis, menningar- og viðskiptaráðuneytis, utanríkisráðuneytis og forsætisráðuneytisins sem fór með formennsku. Nefndin hélt 32 fundi, þar á meðal upplýsingafundi með fulltrúum OECD, en einnig með fulltrúum stjórnvalda í nágrannaríkjum sem starfa að fjárfestingarýni. Efnt var til víðtæks samráðs áforma á vinnslustigi þessa frumvarps, bæði meðal einkaaðila og opinberra aðila. Áform um lagasetningu voru kynnt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda vorið 2022 og bárust þrjár umsagnir. Drög að frumvarpinu voru kynnt til umsagnar í samráðsgátt í október sama ár. Þá bárust átta umsagnir. Hv. þingmenn geta kynnt sér efni einstakra umsagna í samráðsgáttinni en þó má geta þess að sérstaklega hefur verið tekið ríkt tillit til athugasemda umsagnaraðila við endanlegan frágang frumvarpsins. Þannig tel ég að rýnireglum frumvarpsins sé sniðinn stakkur eftir vexti í samræmi við þau markmið um þjóðaröryggi sem að er stefnt og að gættu meðalhófi.

Sérstaklega vil ég geta þess að til þess að frumvarpið hafi sem minnstan snertiflöt við fjármögnun nýrra fyrirtækja sem eru að fara af stað er gert ráð fyrir undanþágu vegna fjárfestinga í nýstofnuðum fyrirtækjum á viðkvæmum sviðum. Sú undanþága gildir ef fjárfesting er undir ákveðinni viðmiðunarfjárhæð samkvæmt reglugerð í allt að þrjú ár frá nýstofnun. Í ljósi sjónarmiða sem komu fram við þetta samráðsferli var tekin ákvörðun um að útvíkka þessa undanþágu svo að hún næði til fleiri tilvika en í upphaflegum frumvarpsdrögum.

Þá var tekin ákvörðun um að þrengja gildissvið 3. töluliðar 3. gr. sem laut í upphafi að nýtingu mikilvægra náttúruauðlinda en tekur nú til auðlindanýtingar í þjóðlendum og einskorðast jafnframt við ákveðna flokka auðlindanýtingar sem eru tæmandi taldir í ákvæðinu.

Einnig var í ljósi athugasemda sem fram komu í samráði farið heildstætt yfir málsmeðferðarreglur frumvarpsins og gerðar á þeim ýmsar breytingar til að auka skilvirkni, m.a. er gert ráð fyrir að þrjú af viðkvæmum sviðum lúti reglunni um styttri tilkynningu til ráðherra í stað lengri tilkynningar áður.

Svo hef ég mikið rætt um þessa stuttu fresti en það er gert ráð fyrir tíu virkum dögum til að meta á grundvelli styttri tilkynningar hvort kalla skuli eftir lengri tilkynningu, en ella telst máli lokið. Loks er í málum vegna lengri tilkynninga jafnframt gert ráð fyrir því, sem er breyting frá fyrri drögum, að málsmeðferð skiptist í tvo fasa þar sem þess má vænta að unnt verði að afgreiða ýmis mál strax í fyrri fasanum eða innan 25 virka daga að jafnaði. Það verða svo vandasamari og flóknari mál sem geta haldið áfram í síðari fasa málsmeðferðar sem skal lokið innan 50 virkra daga með möguleika á viðbótarfresti í 25 virka daga ef sérstaklega stendur á.

Frú forseti. Ég hef hér gert grein fyrir meginatriðum frumvarpsins. Ég vil bara nefna í ljósi þess sem okkur hefur nú orðið svo tíðrætt um hér í þessum sal að undanförnu, m.a. vegna náttúruhamfara og ýmissa atburða sem hér hafa orðið í okkar þjóðfélagi, að þeir mikilvægu innviðir sem við eigum, hvort sem það er í orkukerfum, hitaveitu, vatns- og fráveitu, samgöngum, flutningum, stafrænum grunnvirkjum, fjármálakerfi og öðru sem er talið upp, eins og ég nefndi hér, með tæmandi hætti í 1. tölulið 3. gr., eru grundvallarinnviðir og það skiptir öllu máli að við höfum mjög skýra sýn á hvernig eignarhaldi á þessum innviðum er háttað. Nú vil ég bara að það komi skýrt fram hér að það er mín skoðun að slíkir innviðir séu best geymdir í almannaeigu en það er því miður ekki staðan eins og hún er. Hluti af þessum innviðum er í einkaeigu og þá er það auðvitað algjör grundvallarforsenda fyrir öryggi landsins að stjórnvöld á hverjum tíma hafi yfirsýn yfir það hverjir eru eigendur að slíkum innviðum og hvernig viðskiptum við þá er háttað. Þetta blasti auðvitað við þegar hér var til að mynda verið að selja hluti í fjarskiptafyrirtækjum sem bera ábyrgð á nánast öllum fjarskiptum hér í landi. Þá reyndi á lagaumhverfið frá 1991 og sýndi mér a.m.k. klárlega þörfina á því að við uppfærum okkar lagaumhverfi í takti við samfélagslega þróun og í takti við það sem öll önnur ríki eru að gera. Ég vonast því til þess að þetta frumvarp njóti skilnings í öllum þingflokkum því þetta er alveg gríðarlega mikilvægt mál.

Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari 1. umræðu vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar. Ég ætla ekki að hafa fleiri orð en vænti þess að eiga gott samstarf við þingið um framhaldið.