154. löggjafarþing — 80. fundur,  5. mars 2024.

rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.

726. mál
[14:38]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir framsöguna. Það er vert að benda á varðandi 3. gr. um mikilvæga innviði að hún telur að þar séu mikilvægir innviðir sem eigi að vera í almannaeigu. Þar undir er fjármálakerfið og ég veit ekki betur en að hæstv. forsætisráðherra styðji sölu á Íslandsbanka sem eru mikilvægir innviðir samkvæmt þessari grein.

Það sem mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra um er að þjóðaröryggi er skilgreint sem verndarhagsmunir sem varða friðhelgi, yfirráðasvæði, sjálfstæði og fullveldi Íslands. Í greinargerðinni er talað um fjárfestingarréttindi hér á landi. Þegar ég skoða 3. tölulið 3. gr. er talað um, með leyfi forseta: „Nýtingu vatnsorku, jarðvarma, vindorku, náma og annarra jarðefna í þjóðlendum.“ Ég get ekki séð að fjárfesting í vatnsorku, jarðvarma, vindorku, námum o.s.frv. í þjóðlendum ógni þjóðaröryggi en ekki fjárfestingar í öðru landi. Ég get ekki séð annað en að þessi töluliður missi algjörlega marks með því að binda ákvæðið við þjóðlendur þó að ríkið hafi staðið að mestu eignaupptöku þjóðarinnar í Íslandssögunni með þjóðlendumálunum. Ég get ekki séð hvernig það verði bundið við þjóðlendur en ekki bara allt land á Íslandi, fjárfestingar á þessu sviði, vegna þess að þú getur keypt vatnsréttindi í fullkomnu eignarlandi. Væri ekki rétt að þetta næði yfir allt land í landinu? Og einnig: Væri ekki rétt að í 3. gr. væri tekið fram að land sé viðkvæmt svið sem ætti þá að bætast við tölulið sem lyti að landi? Ég get tekið dæmi um það að Finnar líta svo á — eru með nýja lagabreytingu sem kemur fram í frumvarpinu þar sem fjallað er um land og það er óþarfi að minna hæstv. forsætisráðherra á að varðandi fasteignir í Danmörku þarf leyfi dómsmálaráðuneytisins til að kaupa sumarhúsalóð, kaupa sumarhús, til að kaupa íbúð í Kaupmannahöfn o.s.frv. Er ekki mikilvægt að fella land hérna undir?

Ég er með margar fleiri spurningar sem ég vildi koma að en mér finnst þetta sérstaklega mikilvægt varðandi þjóðlendur og eignarland.