rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.
Frú forseti. Svo ég byrji nú á að ræða mikilvæga innviði í almannaeigu þá er Alþingi með til meðferðar frumvarp sem varðar mikilvæga innviði sem tengjast fjármálakerfi og lýtur að innlendri greiðslumiðlun. Þegar við tölum um innviði fjármálakerfisins þá erum við auðvitað að eiga við slíka innviði en ekki almenna bankastarfsemi sem þarf ekki öll að vera í opinberri eigu. Þannig að það er mikilvægt að við horfum á textann því að þetta eru mikilvægir innviðir sem tengjast fjármálakerfi og það er mjög mikilvægt. Ég ítreka það sem ég sagði hér áðan að til að mynda innlend greiðslumiðlun sé til staðar í landinu því að það er hún ekki í dag og ég vona líka að Alþingi auðnist að ljúka meðferð þess máls.
Hvað varðar 3. liðinn þar sem kveðið er á um að þetta eigi við um þjóðlendur þá er það fullkomlega gilt sjónarmið sem hv. þm. Eyjólfur Ármannsson teflir hér fram. Í fyrri gerð frumvarpsins sem var kynnt í samráði var þetta víðfeðmari heimild. Vegna mikilla athugasemda sem bárust var ákveðið að þrengja þetta niður í þjóðlendur í þessu frumvarpi því að við erum að reyna að vinna þetta mál í þannig samráði við ólíka aðila að markmið frumvarpsins nái fram að ganga án þess að við séum um of að skerða möguleika á erlendri fjárfestingu. Ég vil raunar benda á það líka að auðvitað er til að mynda verulegur hluti af þeirri mögulegu vatnsorku og annarra slíkra orkuöflunarhugmynda á hálendi landsins þannig að það varðar þetta auðvitað beint sem hér er nefnt.
Hv. þingmaður spyr: Af hverju er ekki rætt hér um fasteignir, samanber Danmörku og annað? Ég vil bara minna hv. þingmann á 7. gr. þar sem fjallað er um tilkynningarskyldar ráðstafanir sem varða fasteignir og fasteignaréttindi, ég fór nú mjög hratt yfir það í minni ræðu hér áðan, en þar er fjallað sérstaklega um fasteignir. Ég vil líka minna á það frumvarp sem varð að lögum fyrir einum þremur árum sem varðar takmarkanir á uppkaupum á landi þar sem settar voru takmarkanir á hve mikið land einn aðili og aðilar honum tengdir geta átt, sem var auðvitað líka mikil réttarbót.