rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.
Forseti. Kannski er innleiðing óheppilegt orð í þessu tilviki af því að það er svo tengt EES-innleiðingarferlinu en þetta er svona í almennum skilningi þess að við séum að fara svipaða leið og aðrar þjóðir og séum þá að velja úr hvað hentar okkur og hvað ekki, bara til að hafa það á hreinu. Það sem hæstv. forsætisráðherra nefnir hérna er dálítið svona „brennt barn forðast eldinn“ því að það sem er verið að lýsa varðandi þetta eftirlit sér maður svo augljóslega t.d. hjá Samkeppniseftirlitinu þegar verið er að fylgjast með samrunamálum og þess háttar. Þegar verið er að glíma við stærð slíkra mála þá fylgir einhvern veginn ekki tilheyrandi fjármagn stærð málsins. Það geta t.d. komið stór fyrirtæki hingað inn, hver veit, að Google eða Microsoft kæmu hingað og væru að hlaða upp risastóru gagnaveri eða einhverju því um líku og væru að kaupa upp land og ég veit ekki hvað og alls konar af stærðargráðu sem gjöldin ná mögulega ekki yfir. Þetta eru atriði sem maður hefur séð einhvern veginn gegnumgangandi valda okkur vandræðum. Smæð okkar er alltaf á þann hátt að við gerum ekki ráð fyrir því hvernig regluverkin annars staðar miða smá og meðalstór fyrirtæki við eitthvað sem væri varla — stórfyrirtæki á Íslandi ná ekki einu sinni undir þann flokk eiginlega. Smá og meðalstór fyrirtæki á Íslandi eru bara fjölskyldufyrirtæki í mjög mörgum öðrum löndum. Þannig að það er oft erfitt að reyna að pikka út hvað hentar okkur og hvað ekki. Það verður áhugavert að skoða hvernig þetta púslast allt saman.