rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.
Herra forseti. Ég treysti mér ekki til að svara því hvort ég og hv. þingmaður skiljum hlutina eins en já, þetta frumvarp að mínu mati takmarkar erlenda fjárfestingu í samræmi við efnisatriði frumvarpsins. Það er alveg ljóst. Það er að gjörbreyta fjárfestingarumhverfi og hvernig stjórnvöld taka á því. Ég vil hins vegar koma því að hér að 12. gr. í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri er ekki góð, hún er alls ekki góð. Sú fyrstu kynslóðar rýni sem þar er að finna er allt of víðtæk. Hún er allt of óljós og allt of matskennd. Að því leytinu til tel ég þetta eðlilegt, að við séum að færa okkur í átt að þessari annarrar kynslóðar rýnilöggjöf og séum að taka mið af því sem nágrannaþjóðir okkar, vina- og bandalagsþjóðir og viðskiptaþjóðir eru að gera. Þess vegna er mikilvægt að við séum að stilla af hluti eins vel og hægt er, hafa eins skýra löggjöf um þetta efni og hægt er, hafa stjórnsýsluna eins skilvirka og gegnsæja og hægt er og það sé eins lítið af matskenndum atriðum og hægt er sem veita ráðherra heimild til að byggja sjónarmið á, af því að það getur orðið til þess að vera fráhrindandi fyrir erlenda fjárfesta.