þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir framsöguna á þessu máli. Það er merkilegt að þetta skuli vera, innan sviga, starfslok óbyggðanefndar o.fl. En það virðist hins vegar ekki, ef maður rýnir í frumvarpið, eiga að leggja niður óbyggðanefnd. Vissulega á III. kaflinn að breyta um nafn og heita Málsmeðferð þjóðlendumála, en ég get ekki séð að það eigi að leggja niður nefndina. Það er t.d. ekki verið að fella brott 1. mgr. eða 2. mgr. 6. gr. o.s.frv. Það væri gott að fá að heyra álit hæstv. forsætisráðherra á því, hvort það sé ekki rétt skilið að óbyggðanefnd muni halda áfram störfum, hún muni alla vega vera til samkvæmt lögunum þó að frumvarpið heiti starfslok óbyggðanefndar. En það er eitt sem mig langar að koma hér á framfæri: Við skulum ekki vera að hefja þetta löggjafarstarf um þjóðlendulög upp til skýjanna. Þó að lögfræðingar landsins hér í 101, sem koma nú öll úr sömu skólastofunni, hafi samið þessi lög og þau keyrð í gegn í annarri tilraun, að mig minnir, þá tók 38 ár að fá fyrstu landamerkjalög landsins samþykkt. 38 ár, 1881 samþykkt. Hæstv. forsætisráðherra vísaði til Noregs sem fyrirmyndar. Í Noregi er konungur sem afhenti fylgismönnum sínum land. Ísland var numið af landnámsmönnum, þeir stikuðu út sitt land og námu það og fyrirmyndin í Noregi á ekki við, hvað þá í Mið-Evrópu.
Það sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra að lýtur að því að ríkið ætli að vera eigandi almenninga stöðuvatna. Vissulega las hún upp úr frumvarpinu frá 1998 og fór yfir Landmannaafréttardóminn síðari o.s.frv., en hér er t.d. Mývatnsbotnsdómurinn nefndur frá 1978. Það segir í dóminum að handhafi ríkisins geti í skjóli valdheimilda sinna ráðið meðferð og nýtingu þeirra verðmæta sem eru á Mývatnsbotni og í almenningum. Það er nýtingu og meðferð. (Forseti hringir.) Hvernig getur ríkið kastað eignarrétti sínum á almenninga þegar Hæstiréttur hefur sagt að ríkið geti ráðið nýtingu og meðferð? Hvernig fer það saman?