154. löggjafarþing — 80. fundur,  5. mars 2024.

þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.

737. mál
[15:57]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætla að byrja á að leiðrétta sjálfa mig því ég taldi hér upp ákvæði laganna sem ég felldi nú brott eftir samráð, þ.e. að með lögum sé heimilt að gera landsvæði sem er háð einkaeignarrétti íslenska ríkisins að þjóðlendu. Þetta ákvæði var fellt á brott í samráðsferli þannig að ég bið þingmenn velvirðingar á því að valda hér stórfelldum misskilningi og usla. Ég vil nú segja það við hv. þm. Eyjólf Ármannsson að það er ekki allt slæmt sem kemur úr 101, úr póstnúmeri 101, eins og hv. þingmaður gaf til kynna hér í ræðu sinni þannig að ég stend við fyrri orð mín, ég tel þetta afar framsýn lög sem sett voru á sínum tíma. Þau voru einmitt sett með langtímasýn að leiðarljósi. En að sjálfsögðu hafa ýmis mál komið upp sem þarf að takast á við.

Hv. þingmaður spyr: Er verið að leggja niður óbyggðanefnd? Já, en eins og ég fór yfir í minni framsögu er gert ráð fyrir því að ef upp koma mál innan þriggja ára verði skipuð ad hoc óbyggðanefnd sem taki á slíkum málum og þar með teljist málinu lokið, en föst starfandi nefnd verði ekki til staðar.

Síðan hvað varðar almenninga stöðuvatna þá liggur það fyrir að samkvæmt vatnalögum, samkvæmt túlkun Hæstaréttar á vatnalögum, eru almenningar stöðuvatna eigendalausir. Það er afar ólíklegt að nokkuð geti sýnt fram á að hann eigi réttindi í þeim umfram það sem mælt er fyrir um í lögum. Þetta rímar að sjálfsögðu við það markmið þjóðlendulaga að útrýma eigendalausu landi. Það er ekki æskilegt að hafa eigendalaus svæði því að þá er enginn til þess bær að taka ákvarðanir um ráðstöfun eða nýtingu þeirra. Tökum bara auðlindalögin sem dæmi. Það er ekki hægt að veita leyfi til auðlindanýtingar á eigendalausum svæðum því að þar er gert ráð fyrir því að leitað sé heimildar eiganda.