þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni andsvarið en vísa um leið á bug öllu því sem hér er haldið fram um vinnubrögð í þessum málum. Hv. þingmaður nefnir Mývatnsdóminn og ég nefndi hér áðan Landmannaafréttardóminn síðari þar sem komu upp svipuð sjónarmið þar sem okkar fremstu fræðimenn, sem hv. þingmanni þykir kannski ekki mikið til koma, töldu rétt að hér yrði að bregðast við. Hættan er sú ef þú ert með eigendalaust land — að hver sem er geti numið það og nýtt sér það og skapað sér þar með ákveðin réttindi í gegnum hefð sem er ekki endilega sanngjarnasta leiðin í nútímasamfélagi, bara svo að við horfumst í augu við það að við erum ekki stödd á landnámsöld eins og hv. þingmaður fór hér yfir áðan. Dómar og úrskurðir hafa í raun skýrt betur og tryggt betur réttindi bænda til nýtingar lands á afréttum. (Gripið fram í.) Þannig að ég get ekki tekið undir þetta.
Með þessu frumvarpi er verið að leggja til að almenningar stöðuvatna séu felldir undir leyfisveitingareglur þjóðlendulaga sem tryggja þá að gætt sé jafnræðis, að eðlilegt endurgjald fáist fyrir nýtingu og að sama skapi er tryggt að ef einhver á réttindi í almenningum stöðuvatna umfram þau sem leiða af lögum og getur sýnt fram á það, heldur hann þeim óskertum. Þetta er ekki mjög flókið að mínu viti, herra forseti, og snýst um það að við séum að tryggja ákveðið jafnræði gagnvart því hvernig við umgöngumst land og landréttindi.