þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu sem var mjög mikilvægt innlegg í þessa umræðu og tek heils hugar undir það sem þar kom fram. Ég hef sjálfur heyrt ófáar sögur svipaðs eðlis þar sem fólk er gjörsamlega orðlaust yfir hörku ríkisins eða kröfugerð ríkisins á hendur sér. Það missir gjörsamlega tiltrú á ríkisvaldið og skilur hreinlega ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Löghlýðið fólk sem hefur kannski búið í sinni sveit alla sína tíð, átt sitt land, stundað búskap á sínu landi og síðan lendir það í því að fá kröfugerð frá fjármálaráðherra um að ríkið eigi 40% af jörð þess. Það er alveg hárrétt sem kom fram hjá hv. þingmanni að þetta var ekki vilji löggjafans á sínum tíma. Af hverju? Vegna þess að Landmannaafréttardómur síðari nær til miðhálendisins og löggjöfin átti upphaflega bara að ná til miðhálendisins. En nei, það var haldið áfram, það var farið á Snæfellsnes, það var farið austur á firði, það farið í Tröllaskagann, í Dalina og svo á Vestfirði. Það að segja það að eitthvað sem stæði ekki alveg í landamerkjabréfum — í landamerkjabréfum sem ég hef skoðað er ekkert minnst á netlög. Af hverju fer ekki ríkið og reynir að hirða netlög af öllum bændum á Vestfjörðum? Það er ekki nóg að fara bara á hálendið.
Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann að er þetta: Veit hann dæmi þess að fólk ætli að reyna að sækja rétt sinn fyrir dómstólum í krafti þess að eignarrétturinn er friðhelgur? Það er alveg kristaltært í mínum huga að ríkisvaldið í þjóðlendumálum hefur fótumtroðið þessa friðhelgi aftur og aftur. Það væri gott að heyra álit hv. þingmanns á því hvort fólk ætli að beita einhverjum úrræðum sér til varnar.