þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Hæstv. fjármálaráðherra hefur komið því skýrt á framfæri að henni hugnist það ekki að fara að sölsa undir sig eyjar og sker og nefndi sérstaklega Vestmannaeyjar í þeim efnum. Ég veit að fjármálaráðherra er að fara yfir þetta samviskusamlega og með hvaða hætti hún getur komið að þessu máli. Það er ekki alveg einfalt en sú vinna er sannarlega í gangi. Það er rétt að halda því til haga. Ég segi bara enn og aftur að ég vona svo sannarlega að menn hafi lært af þessu ferli og það er ánægjulegt að nú hillir undir að þessum málum sé að ljúka. Ég var persónulega á móti því að fara í þessa vegferð gagnvart sjávarjörðunum, eyjum og skerjum og greiddi atkvæði gegn þessari auknu lagaheimild sem nefndinni var færð fyrir ekki svo löngu síðan. En þetta er veruleiki sem blasir við og auðvitað er maður hugsi yfir því á hvaða vegferð ríkisvaldið er almennt þegar kemur að jörðum. Eins og ég nefndi með þetta dæmi úr Meðallandinu, að ríkisvaldið skuli vera valda bændum sem hafa búið á sínum jörðum í áraraðir hugarangri og svefnleysi og öðru slíku með því að setja fram kröfur og það sé í raun og veru verið að vefengja þinglýst gögn, þinglýstar eignarheimildir fyrir sínu landi. Það er ekki bara óbyggðanefnd. Ég nefndi Landgræðsluna áðan. Þetta er bara staðreynd sem er alveg hægt að skoða og ætti einmitt að fara yfir það mál sérstaklega, hvers vegna Landgræðslan gengur fram með þessum hætti og hver tilgangurinn er í þeim efnum.