154. löggjafarþing — 80. fundur,  5. mars 2024.

þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.

737. mál
[16:28]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S):

Herra forseti. „Í upphafi skal endinn skoða,“ er gjarnan haft á orði og nú þegar þetta frumvarp liggur fyrir er ágætt að við endalok starfa óbyggðanefndar sé aðeins vikið að upphafinu. Hæstv. forsætisráðherra fór í ræðu sinni mjög vel yfir málið í heild sinni og gerði grein fyrir því á sínum tíma. Það sem ég vil koma inn á er að þegar málið var lagt fram 1998 og varð að lögum var megintilgangur laganna og meginvilji löggjafans að eyða óvissu, eyða óvissu um mörk eignarlanda og svo afrétta og almennings, enda er heiti laganna lög um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.

Það var ekkert endilega nauðsynlegt að búa til nýtt eignarréttarlegt form, þjóðlendur, yfir það sem var áður almenningur. Það var í rauninni ekki aðalatriðið. Aðalatriðið var að skera úr um óvissuna um hver mörkin væru. Það er rétt að það hafði komið til máls að m.a. landeigendur töldu sig eiga meira land inni á almenningi en þeir áttu eða að sveitarfélög töldu að þau hefðu ákveðið skipulagsvald yfir almenningum. Af þessum dómum Hæstaréttar leiðir að þetta var þörfin og þess vegna féllst þingheimur á þetta á sínum tíma og samþykkti lögin. Það var til að eyða óvissunni.

Svo er það bara þannig að við framkvæmd og beitingu þessara laga reyndist það ekki alveg vera í samræmi við uppleggið. Þá voru það ekki hagsmunir ríkisvaldsins í kröfugerð sinni að eyða óvissu heldur má eiginlega segja að það hafi miklu frekar orðið að hagsmunamáli fyrir ríkisvaldið að þjóðlendur yrðu sem stærstar og ef það skorti eitthvað upp á eignarheimildarskjöl landeiganda þá gekk ríkið inn í þá óvissu og hreinlega sneri sönnunarbyrðinni við, eða vildi líta svo á að hægt væri að snúa sönnunarbyrðinni við. Ef eitthvað vantaði upp á að gerð væri grein fyrir því frá hvaða hóli eða snös eða barði eignarlönd voru þá stakk ríkið sér inn í og sagði: Heyrðu, ef það er ekki nógu skýrt í eignarheimildaskjölum aftur til alda að þú eigir þetta þá ætlar ríkið að taka það. Þetta var niðurstaðan og þetta er sú óheillasaga þessa máls í 26 ár sem við höfum búið við. Í stað þess að skera einfaldlega úr um það með skjótvirkum hætti með stjórnsýslunefnd hvar eignamörkin væru þá var, eins og hv. þm. Birgir Þórarinsson kom réttilega inn á, verið að draga fólk og það var krafið um að sanna að það ætti það sem það átti. Þetta var ekki tilgangur laganna.

Ég vil gera eitt efnisatriði í frumvarpinu að umtalsefni. Það er 2. gr. sem fjallar um að ríkið verði, verði frumvarpið að lögum, eigandi almenninga í stöðuvötnum að því leytinu sem réttindi í þeim leiða af lögum nema að því leytinu til að aðrir geti sýnt fram á annað. Ef þetta væri svona einfalt, herra forseti, þá hefði ríkið einfaldlega getað sett slík lög 1998: Það sem enginn á, það á ríkið. Það sem er í þessu atriði og ég staldra við er: Er einhver ágreiningur um mörk almenninga í stöðuvötnum? Hefur reynt eitthvað sérstaklega á það? Ég held að svo sé ekki.

Það kann að vera að ríkisvaldið vilji eiga almenninga í stöðuvötnum og telji að þannig þurfi það að ráðstafa heimildum til þeirra auðlinda sem er að finna á botni stöðuvatna. En það er einfaldlega ekki þannig. Hv. þm. Eyjólfur Ármannsson hefur bent á að með dómi Hæstaréttar um Mývatn hefur ríkisvaldið í krafti valdheimilda sinna allar leiðir til að setja reglur um ráðstöfun eða nýtingu auðlinda sem er að finna í almenningum stöðuvatna. Og af hverju ætli það sé að við höfum hérna fiskveiðistjórnarlöggjöf? Það er til sönnunar á þessu máli. Það eru þrír almenningar í landinu, eða voru það fyrir setningu þjóðlendulaga; almenningur á hálendi þar sem voru afréttir eða beitarlönd, almenningur í hafi og almenningur í stöðuvötnum. Þetta eru þessi þrjú atriði þar sem almenningur er til. Almenningur í hafi er enn þá til en það hafa verið settar mjög ítarlegar reglur, fiskveiðistjórnarkerfið, um hvað má hagnýta eða ráðstafa og hvað má ekki á því svæði. Það sama gildir auðvitað um almenninga í stöðuvötnum, myndi ég telja, herra forseti.

Hitt atriðið sem ég vil koma inn á snýr að máli sem er tengt þessu frumvarpi um það hvernig óbyggðanefnd á að ljúka störfum. Þess er nefnilega sérstaklega getið í greinargerðinni að ástæðan fyrir því að lagt er til að ríkið slái eign sinni á almenninga í stöðuvötnum sé í rauninni til að sleppa þeirri málsmeðferð, hætta þessu. Það hefur í rauninni engan tilgang, það er enginn ágreiningur og því er bara leyst úr því með þessum hætti, að óbyggðanefnd fari ekki að fjalla um þetta.

Þá kem ég að seinna atriðinu sem ég vildi gera hér að umtalsefni og það varðar breytingartillögu um þetta frumvarp sem ég og fleiri höfum lagt fram, nánar tiltekið, ásamt mér, hv. þingmenn Jón Gunnarsson, Vilhjálmur Árnason, Birgir Þórarinsson og Óli Björn Kárason, þar sem við gerum þá tillögu að á eftir 4. gr. komi ný grein, svohljóðandi:

„Við 7. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi: Ákvæði 1. mgr. taka ekki til landsvæða utan strandlengju meginlandsins.“

Og svo leiðir af öðrum breytingum því samfara að 10. gr. a laganna falli niður. Hér er einfaldlega verið að leggja það til að óbyggðanefnd hætti allri málsmeðferð um landsvæði utan meginlandsins. Þetta helgast m.a. af þeirri umræðu sem hefur sprottið af kröfugerð ríkisins í eyjar, hólma og sker landið um kring, kröfugerð sem augljóslega er stórkostlega gölluð, bæði að efni og formi, og ágætir þingmenn hafa komið inn á í sínum ræðum. Þetta leggjum við til af því að það er í sjálfu sér engin óvissa sem fyrir liggur um hver eru mörk eyja, hólma og skerja. Hver er óvissan sem er ríkjandi, óvissa sem er þannig að það varði almannahagsmuni, að það þurfi að fá úr því skorið með málsmeðferð fyrir óbyggðanefnd? Slíkt er hreinlega ekki uppi. Það sést á kröfugerð ríkisins í þessu máli að ríkið er ekki með neinar upplýsingar um það hvernig eignarhaldi eyja, hólma og skerja er háttað eða hefur a.m.k. ekki haft fyrir því að afla sér þessara upplýsinga. Það kemur þá í ljós að ríkið hefur ekki einu sinni rýnt í kort af þessu hafsvæði, segjum Breiðafirði, til að átta sig á því hversu langt netlög sjávarjarða ná út og yfir í hólma, sker og eyjar. Það er ekki með upplýsingar um dýpið. Það hreinlega veit ekki hvað það er að gera, herra forseti.

Og hvað gerir þá ríkisvaldið í sinni kröfugerð? Það gerir kröfu um að eignast allar eyjar, hólma og sker, bara til að vera alveg visst um að það geti sölsað undir sig allt þetta svæði. En eins og ég kom að í upphafi máls míns var forsendan fyrir þjóðlendulögum að eyða óvissu og skera úr um ágreining um eignamörk. Varðandi svæði 17 sem snýr að eyjum, hólmum og skerjum þá tel ég, og flutningsmenn þessarar breytingartillögu með mér, að þessi frumforsenda fyrir því að ráðast í þessa málsmeðferð sé ekki til staðar. Þess vegna er langbest að löggjafinn taki af skarið með þessum hætti og einfaldlega kveði á um að þessari málsmeðferð skuli hætt.

Ef það kemur hugsanlega upp í framtíðinni einhver ágreiningur eða að það sé einhver óvissa einhvers staðar um mörk, á einhverri eyju eða einhverjum hólma eða einhverju skeri, þá þarf ekki þessa sérstöku málsmeðferð sem er í lögum um þjóðlendur. Þá eiga reyndar að gilda bara almennar reglur, almennar réttarfarsreglur í landinu. Sá sem telur sig eiga hagsmuna að gæta að fá úr því skorið, hann getur einfaldlega höfðað mál, hann getur höfðað viðurkenningarmál fyrir dómstólum til að fá úr einhverri óvissu eða ágreiningi skorið. Ef ríkisvaldið telur að það þurfi að stinga sér inn í eignarhald yfir eyjum, hólmum og skerjum á landinu þá getur ríkisvaldið einfaldlega höfðað slíkt viðurkenningarmál í því sérstaka tilviki en án þess að draga þessa málsmeðferð alla og alla landeigendur, alla hagsmunaaðila sem eiga eignarrétt á eyjum, hólmum og skerjum landið um kring. Við getum bara sleppt þessu, hætt að draga þá inn í óþarfa málsmeðferð, málsmeðferð sem er ekki til þess fallin að leysa nein vandamál, þvert á móti, hún er til þess fallin að búa til vandamál, búa til áralangar deilur fyrir bæði óbyggðanefnd og fyrir dómstólum.

Það er sérstakt, herra forseti, fyrst við erum að ræða þetta mál, að þegar lögum á Alþingi var breytt 2020 þá var það með sérstöku sérákvæði sem kvað á um að óbyggðanefnd væri heimilt að ákveða aðra málsmeðferð við eyjar, hólma og sker en hefði gilt á meginlandinu. Það kemur alveg skýrt fram í greinargerð með frumvarpinu, sem varð að lögum nr. 34/2020, hvaða verkefni menn stóðu frammi fyrir. Þá leyfi ég mér að vitna í greinargerðina, um 5. gr. frumvarpsins, sem varð þá að lögum. Þar stendur, með leyfi forseta:

„Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um fjölda þeirra landfræðilegu eininga sem eru ofan sjávarmáls á stórstraumsfjöru.“

Þær liggja sem sagt ekki fyrir. Svo segir síðar:

„Ætla má að það kynni að reynast afar tímafrekt að viðhafa sams konar málsmeðferð vegna þeirra og tíðkast hefur vegna meginlandsins.“

Það er sem sagt eðlismunur á þeirri stöðu sem uppi er annars vegar varðandi meginlandið og svo hafsvæði landsins. Svo eru önnur atriði sem komu fram í þessari ágætu greinargerð og þá segir, með leyfi herra forseta:

„Í mörgum tilvikum getur verið um að ræða að eignarréttindi á eyjum og skerjum fylgi jörðum á meginlandinu, einkum sjávarjörðum.“

Þetta var alveg ljóst í huga löggjafans á þessum tíma. Það segir svo líka annars staðar í greinargerðinni, með leyfi herra forseta:

„Til dæmis kann mögulega að þykja óþarft að láta hana eiga við um eyjar í byggð eða einstaka hluta þeirra …“

Allt sem lagt var til grundvallar við lagabreytinguna 2020, þar sem fela átti óbyggðanefnd heimild til að viðhafa vægari málsmeðferð, byggði á því að þetta myndi reynast gríðarlega kostnaðarsamt, gríðarlega umfangsmikið og flókið og það væru fáar eignarheimildir mögulega sem hægt væri að styðja við. Einhverra hluta vegna, þrátt fyrir að þáverandi fjármálaráðherra og núverandi fjármálaráðherra hafi farið þess á leit við óbyggðanefnd að viðhafa einmitt þá málsmeðferð sem löggjafinn var að stinga upp á, er þetta mál komið í slíkt óefni að það er að mínu mati og flutningsmanna þessarar breytingartillögu þörf á að taka hana til vandlegrar meðferðar og kanna: Er virkilega þörf á að fara í þessa málsmeðferð? Fyrir mitt leyti held ég að svarið sé augljóst. Að mínu viti er svarið nei.