heilbrigðisþjónusta.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórssyni, fyrir framlagt frumvarp um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu hvað varðar fjarheilbrigðisþjónustu. Þetta er hvorki stórt né veigamikið frumvarp, en mikilvægt vegna þess að hér er verið að koma inn skilgreiningum sem eru nauðsynlegar til að greiða veg fjarheilbrigðisþjónustu um allt land. Eins og segir í greinargerð með frumvarpinu, með leyfi forseta:
„Með fjarheilbrigðisþjónustu er hægt að nýta betur mannauð, efla samvinnu milli stofnana og landsvæða, auka hagkvæmni, gera þjónustu aðgengilega óháð búsetu og stuðla að nýsköpun. Notkunarmöguleikar fjarheilbrigðisþjónustu eru fjölmargir og ávinningurinn af árangursríkri innleiðingu hennar er ótvíræður fyrir sjúklinga, heilbrigðisstarfsmenn, heilbrigðisstofnanir og samfélagið í heild.“
Ég vil undirstrika að þetta jafnar aðgengi að heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Ég hef talað um það hér í mörgum ræðum og greinum hvað þetta er mikilvægt þó að þetta komi aldrei í stað heilbrigðisþjónustu í heimabyggð. Skýrsla Byggðastofnunar um byggðafestu og búferlaflutninga kom út árið 2021 þar sem gerð var íbúakönnun í stærri bæjum á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu. Þar vó aðgengi að heilbrigðisþjónustu eðlilega þungt þegar val um búsetu var metið. Við á Íslandi búum við gott heilbrigðiskerfi og það kom sérstaklega í ljós á þessum tímum í heimsfaraldri hversu gott heilbrigðiskerfi við höfum. Við þurfum samt alltaf að bæta það og endurskoða.
Í aðgerðaáætlun sem var sett í tengslum við heilbrigðisstefnu sem gildir til 2030 koma fram áherslur á að aðgengi að heilsugæslu og þjónustu sérfræðinga á landsbyggðinni verði bætt með fjarheilbrigðisþjónustu. Fjarheilbrigðisþjónustu fylgja auðvitað bæði tækifæri og áskoranir og mótun slíkrar þjónustu þarf að ígrunda vel, bæði hvað varðar þá sem njóta hennar og veita hana. Tæknin er til staðar og með þessu frumvarpi er verið að hnykkja á skilgreiningum eins og á fjarsamráði, fjarvöktun, myndsamtali, netspjalli og hjálparsíma, og velferðartækni. Þetta þarf allt að vera á hreinu þegar farið er í þessa þjónustu. Með fjarheilbrigðisþjónustu er verið að nýta betur þann mannauð sem hver stofnun býr yfir þannig að þjónustan verði aðgengileg óháð búsetu og fagfólk hafi aðgang að meiri stuðningi í sínu heimahéraði. Það hefur einmitt verið talað um að það hafi verið erfitt að manna fagmenntaðar stöður í heilbrigðisgeiranum á mörgum stöðum, eins og lækna og hjúkrunarfólks, og eitt af þeim atriðum sem læknar nefna er að það að hafa samskipti við aðra í faginu skiptir máli og að stundum sé erfitt að vinna bara einn. Það er skiljanlegt en með þessu væri hægt að nýta teymisvinnu, leiðbeiningar og annað og hafa þá stuðning af kollegum á öðrum svæðum, hvort sem það er í heimahéraði eða bara á Landspítalanum sem er háskólasjúkrahúsið okkar.
Fjarheilbrigðisþjónusta kemur þó aldrei í stað fyrir þjónustu í heimabyggð. Hún getur þó brúað bilið í mörgum tilfellum og fækkað dýrum ferðum fólks á milli landshluta í leit að þjónustu. Ég vil t.d. nefna dæmi um fólk sem býr inni á hjúkrunarheimilum og getur ekki eða á erfitt með að komast á milli landshluta til lækna og sérfræðinga. Þetta er einmitt fólkið sem þarf mikið á slíkri þjónustu að halda og þá held ég að svona þjónusta verði alltaf til bóta, en fjarheilbrigðisþjónusta getur stuðlað að jöfnu aðgengi að heilbrigðisþjónustu.
En það er ekki bara fjarheilbrigðisþjónusta — það reyndi svolítið á það í Covid þegar allt var lokað að t.d. væri hægt að heimsækja fólkið sitt. Það eru náttúrlega margir sem á hjúkrunarheimilum um allt land eða bara inni á sjúkrahúsum sem eiga aðstandanda annars staðar, jafnvel í öðrum löndum, og notað hefur verið tæki sem ég held að heiti fjarvera, eins og er notað í fjarkennslu og til slíkra hluta, en öll lög og reglur þurfa náttúrlega að styðja við þessa þjónustu svo að hægt sé að nýta hana og nota. Ég held að þetta geti verið til bóta og við þurfum að gera meira af þessu og við þurfum líka alltaf að vera að endurskoða heilbrigðislög og lög um heilbrigðisþjónustu út frá tækninýjungum. Við þurfum líka að verjast einhverju sem getur ráðist á þetta kerfi. Við þurfum að læra að nýta okkur gervigreindina í þessu sambandi. Ég get ekki nefnt neitt dæmi um hvað það ætti að vera en við þurfum alla vega að skoða það sem er í gangi í þeirri tækni og í þessari þróun til að jafna þjónustu um allt land. Það er ekki bara að þetta nýtist innan okkar landamæra heldur er hægt að nýta þetta til að hafa samband við sérfræðinga erlendis frá ef við erum kannski með eitthvert tilfelli sem er mjög sérstakt hérna. Ég veit að þetta er mikið notað en ég held að það sé þörf á að nýta þetta enn betur og þess vegna fagna ég þessu frumvarpi. Við eigum alltaf að vera vakandi fyrir að móta okkar lög og reglur sem best til að jafna aðgengi að heilbrigðisþjónustu um allt land.