154. löggjafarþing — 80. fundur,  5. mars 2024.

heilbrigðisþjónusta.

728. mál
[17:25]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Hæstv. forseti. Ég ætla aðeins að koma hingað upp eins og sú á undan mér, en við höfum eðlilega sem dreifbýliskonur talað talsvert mikið um þessi mál vegna þess að þau skipta miklu máli þar sem þjónustan er oft af skornum skammti og ekki síst hjá tilteknum sérfræðilæknum. Eins og við þekkjum á það jafnvel líka við um heimilislækna og aðra að það er og verður áskorun, ekki bara á Íslandi heldur víða um heim, að manna þessar stöður. Þess vegna held ég að þegar við getum náð að búa til góðan ramma utan um fjarheilbrigðisþjónustuna og tileinkað okkur hana, það er kannski líka það sem þarf að gerast að fólk þarf að tileinka sér þessa þjónustu eins og allt annað, getur það kostað talsverða fjármuni í upphafi dags, eins og sagt er, að útbúa það með þeim hætti svo tilhlýðilegt sé, ekki síst með tilliti til upplýsingaöryggis, sem ég held að sé afar mikilvægt. Við sáum að þjónustan var stoppuð á Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna þess að það þótti ekki nægjanlega öruggt umhverfi sem unnið var í. En þar var t.d. um að ræða lækni frá Ameríku sem var að aðstoða inni á deild á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þannig er í rauninni hægt að bjarga afskaplega mörgu.

Við þekkjum alveg að það eru nokkur verkefni af ýmsum toga sem hafa verið sett af stað, bæði þegar kemur að heilbrigðisþjónustu og kennslu og öðru slíku, sem byggjast á fjarþjónustu. En það sem ég sé dálítið fyrir mér í þessu er að hvort sem það eru augnlækningar eða sálgæsla eða bara almenn viðtöl eða aðstoð við hjúkrunarfræðing sem er á staðnum þar sem eru kannski ekki læknar o.s.frv. þá getur þetta allt hjálpað til. Þú ert kannski að upplifa ákveðna samfellu af því að þú ert að tala við sama aðilann í staðinn fyrir að í dreifbýlinu er það mjög oft þannig að það kemur nýr og nýr læknir með einhverju millibili, tæplega er hægt að segja að það sé reglulegt, sem veldur líka ákveðnum óþægindum, þ.e. að fólk er ævinlega byrja upp á nýtt með því að segja hvað að því amar og það verður jafnvel ekki samfella í meðferð eða öðru slíku. Þetta ætti að geta orðið til þess að þetta geti nýst fólki ef okkur tekst að gera þetta þannig að það vilji raunverulega nýta sér það og sjái sér hag í því. Ég er ekki að halda því fram að það geti ekki verið þannig í upphafi, ekki síst ef fólk á í einhverjum svona lengri veikindum eða í einhvers konar viðtalsmeðferð eða einhverju slíku, að þú þurfir að hitta viðkomandi lækni, skjólstæðingar þurfi að sitja saman eða eitthvað slíkt. En í framhaldinu er hægt að fylgja því eftir með þessum hætti, kannski öllum til hagsbóta og ekki síst þeim sem þurfa um langan veg að fara.

Það er talsvert mikið til af lausnum í þessu en þetta er líka eitt af því sem við sjáum þróast mjög hratt. Það hefur verið eftir því kallað. Í þau skipti a.m.k. sem ég hef um þetta rætt hef ég gjarnan fengið einhverja tölvupósta í framhaldinu þar sem fólk vill endilega ræða málin og segja frá því sem það er að bardúsa og það hafa verið veittir margir styrkir líka til nýsköpunar í þessum málum. Þannig að ég held að þetta sé eitt af þeim skrefum sem er nauðsynlegt að stíga, þ.e. að ná utan um þetta almennilegri umgjörð og að við vitum um hvað við erum að tala þegar við erum að tala um fjarheilbrigðisþjónustu.

Viðskiptaráð leggst gegn því að þetta verði bundið fyrirmælum landlæknis. Ég er þeim ósammála. Þeir koma nú væntanlega á fund velferðarnefndar og gera grein fyrir sinni afstöðu. Þetta kemur hér fram í greinargerð frumvarpsins. Ég tel að þetta eigi að lúta sömu kröfum og önnur slík þjónusta og tel einmitt mjög mikilvægt að það sé þessi aðili, þessi embættismaður sem við höfum falið það hlutverk samkvæmt lögum að sinna þessu verkefni og að það verði utan um þetta haldið þeim megin frá, ekki síst er varðar upplýsingaöryggi. Eins og ég sagði áðan, sem kom fram um daginn, þá er verið að vinna í að lagfæra og finna leiðir til að gera þetta þannig öruggt að allir geti í rauninni — og þú verður auðvitað að vera viss um það að þegar þú ert hjá lækni og í læknismeðferð að það sé á milli þín og læknisins en ekki einhvers staðar annars staðar þó að það sé yfir netið.

Ég hlakka bara til að vinna þetta verkefni í velferðarnefnd og vona að við tökum okkur ekki óhóflega langan tíma í það. Ég tel ekki þörf á því, ég held að við eigum að geta klárað okkur af í þessu af því að fyrst og fremst er þetta tæknilegt. Ég tek undir þau sjónarmið sem reifuð eru varðandi þetta, að þetta þurfi að höfða til forsendna ólíkra hópa, ekki síst það sem Öryrkjabandalagið og Þroskahjálp segja og við þekkjum auðvitað slíkar sögur þar sem erfiðleikar eru jafnvel með skilríki sem getur einmitt komið fram í þessu þegar þarf að nýta sér fjarheilbrigðisþjónustu. Það er verið að vinna að lausnum á þeim málum þannig að ég vona að það nái fram að ganga sem allra fyrst. En það er sannarlega í vinnslu að reyna að leysa úr því máli því að það er auðvitað óboðlegt eins og það er í dag.

Hæstv. forseti. Ég vona bara að við náum að vinna þetta mál hratt og vel í velferðarnefnd.