154. löggjafarþing — 81. fundur,  6. mars 2024.

Störf þingsins.

[15:03]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Herra forseti. Vonandi hillir undir að samningar náist á almennum vinnumarkaði. Þar mun aðkoma hins opinbera, ríkis og sveitarfélaga skipta miklu máli. Við í Samfylkingunni höfum lýst stuðningi við þá grundvallarnálgun sem breiðfylkingin í ASÍ hefur sett fram og við höfum lagt áherslu á að kjarabætur verði ekki aðeins sóttar gegnum launaliðinn heldur líka að verulegu leyti gegnum tilfærslukerfin okkar sem taka mið af aðstæðum fólks. Við höfum m.a. lagt til að greiddur verði út sérstakur vaxtabótaauki til að styðja við tekjulág heimili með þunga greiðslubyrði, fólkið sem er að sligast undan háum vöxtum og efnahagsóstjórn í landinu. Stjórnarmeirihlutinn greiddi illu heilli atkvæði á Alþingi gegn slíkum vaxtabótaauka í fyrra. En nú þegar lítið ber á milli aðila á vinnumarkaði þá vil ég hvetja hæstv. ríkisstjórn eindregið til að fá bara þessa hugmynd að láni og gera að sinni; greiða út sérstakan vaxtabótaauka til skuldsettra heimila, þ.e. ef ekki er vilji til þess að hækka varanlega eignaskerðingarmörk og styrkja vaxtabótakerfið.

Íslenska barnabótakerfið er það minnsta og veikasta á Norðurlöndunum miðað við umfang hagkerfisins og fjölda barna. Úr þessu verður að bæta, líkt og við í Samfylkingunni höfum talað fyrir. Ég fagna því líka sem ég les í fréttum að það stefni í að ríki, sveitarfélög og aðilar vinnumarkaðarins komi sér saman um fríar skólamáltíðir. En loks vil ég hvetja sérstaklega til þess að við hér komum okkur saman um umbætur á fæðingarorlofslöggjöfinni. Ég vil vekja athygli á frumvarpi mínu til breytinga á fæðingarorlofslögum sem Alþýðusamband Íslands hefur lýst stuðningi við. Þar er m.a. lagt til að þakið hækki úr 600.000 kr. í 800.000 kr. og að fyrstu 350.000 kr. viðmiðunartekjurnar verði óskertar. Þetta eru skynsamlegar leiðir til að bæta kjör fólks og ég hvet ríkisstjórnina til að horfa til þeirra.