154. löggjafarþing — 81. fundur,  6. mars 2024.

Störf þingsins.

[15:09]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Í gær, þriðjudag, leit ný könnun Vörðu – rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins dagsins ljós. Við sjáum m.a. að staða innflytjenda mælist markvert verri en innfæddra Íslendinga fjórða árið í röð og mun hærra hlutfall þeirra á erfitt með að ná endum saman. Hópurinn getur mun síður mætt óvæntum útgjöldum og mörg hver hafa ekki haft tök á að greiða fyrir grunnþætti fyrir börnin sín. Við sjáum líka að staða þeirra á húsnæðismarkaði er gjörólík stöðu innfæddra, þau eru mun minna í eigin húsnæði, búa við þyngri mánaðarlega greiðslubyrði af húsnæðiskostnaði, þurfa oftar að flytja og búa í meira mæli í húsnæði sem hentar hreinlega ekki. Þrátt fyrir þetta sér meiri hluti innflytjenda á Íslandi fyrir sér að setjast hér að til frambúðar. Það er jákvætt en þessa misskiptingu þarf að uppræta með öllum tiltækum leiðum. Það er of ríkjandi viðhorf hér að einblínt sé á stöðu þeirra sem vinnuafls. Við heyrum frasa á borð við: Við þurfum þetta fólk. Já, við þurfum það svo sannarlega, en er ekki kominn tími á að við horfumst í augu við skyldurnar sem við berum gagnvart þeim? Þau þurfa líka á okkur að halda og við erum ekki til staðar. Ég kalla eftir því að þau njóti alls þess sem íslenskt velferðarkerfi hefur upp á að bjóða. Hluti af því samtali er að horfa ekki fram hjá þörfum þeirra. Hættum að tala aðeins um framlag þeirra sem vinnuafls heldur sem fólk og ávörpum þær lausnir sem við þurfum að leggja á borðið til að ná settu takmarki. Við skulum heldur ekki horfa fram hjá þeim sem hlaupa hvað hraðast í því samfélagi sem við búum í. Það eru kvennastéttir sem samanstanda af íslenskum konum sem eru hér uppaldar og þeim sem koma að utan, sem eru í heilbrigðis-, velferðar- og skólakerfinu. Ísland verður aldrei land tækifæranna þegar við búum hér markvisst til hliðarsamfélög og í umræðunni stóru skiptir máli að leggja til lausnir.