154. löggjafarþing — 81. fundur,  6. mars 2024.

Störf þingsins.

[15:14]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Umtalsverð breyting hefur orðið á okkar samfélagsgerð á tiltölulega fáum árum, hjá okkar tiltölulega fámennu þjóð á fjarlægri eyju. Fyrir 20 árum var hér mun einfaldari og skulum við segja öðruvísi samfélagsgerð heldur en við blasir í dag. Það er ekki óeðlilegt að þeir sem hafa uppgötvað Ísland kjósi að koma hingað, þeir skipta milljónum á hverju ári sem koma og heimsækja okkur og þeir sem kjósa að koma og búa hér, starfa hér og leita atfylgis eru nú um 20% íslensku þjóðarinnar, 75.000 af þeim 400.000 sem hér búa. Við þurfum ekki að bera kinnroða fyrir það hvernig við höfum tekið á móti þeim sem eru nauðsynlegur þáttur í því að geta rekið hér öfluga ferðaþjónustu, öflugan byggingariðnað, fiskiðnað o.fl. Við höfum fagnað þessu fólki og við eigum að gera betur í að hjálpa því að aðlagast, læra tungumálið og annað slíkt. Það sem við þurfum hins vegar að horfast í augu við er að á þessum tíma, sérstaklega eftir að Schengen opnaði hér allar gáttir sem næst eftirlitslaust, hefur hér fjölgað mjög glæpahringjum; mafíum frá allmörgum þjóðlöndum, mishættulegar, misógnandi. Það þarf að gera íslenskum yfirvöldum og lögreglunni kleift að taka á þeirri brotastarfsemi sem hér grasserar og er ógn við samfélagið okkar. (JónG: Samþykkjum lögreglulögin.) Við skulum sameinast um það að láta ekki dragast mikið lengur að efla þann þátt sem spornar við (Forseti hringir.) stórhættulegri glæpastarfsemi. Við lesum um eitt dæmi þess í blöðunum í dag. Sameinumst um það sem þarf að gera til að standa vörð um öryggi borgaranna á Íslandi.