154. löggjafarþing — 81. fundur,  6. mars 2024.

Störf þingsins.

[15:23]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Skömmu eftir samþykkt mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna árið 1948 var ritgerð heimspekingsins Hönnu Arendt birt undir heitinu Mannréttindi: Hvað er það? Hannah Arendt var þýskur heimspekingur og er einn áhrifamesti stjórnmálahugsuður 20. aldar. Hún var gyðingur sem neyddist til að flýja Þýskalandi nasismans árið 1933. Í ritgerðinni segir Hannah að mannréttindayfirlýsingin feli í sér mótsögn; skyldur ríkja til að vernda algild og óafsalanleg réttindi alls fólks annars vegar og hins vegar ríkjandi hugmyndir um landfræðilegt fullveldi ríkja. Úr þessari mótsögn verði einungis leyst með því að viðurkenna réttinn til þess að hafa réttindi. Ofsóknir á hendur gyðingum og öðrum hópum í seinni heimsstyrjöldinni voru Hönnu afar hugleiknar. Hún spyr sig hvernig hægt hafi verið að ofsækja fólk og útrýma því með þeim hætti sem gert var þrátt fyrir að hugmyndir um algild mannréttindi væru löngu komnar fram. Hún komst að þeirri niðurstöðu að við það að missa borgaraleg réttindi og þegnréttindi í samfélagi, eins og gerðist með gyðinga, væru menn berskjaldaðir og varnarlausir. Mannréttindi séu þannig orðin tóm hafi fólk ekki þau réttindi sem borgaralegt samfélag veitir þegnum sínum. Þess vegna sé rétturinn til að hafa réttindi það sem öllu máli skipti. Það sem vakti mestan ugg hjá Hönnu er sú tilfinning réttindalauss fólks að því sé ofaukið á yfirfullri plánetu, eins og hún orðar það. Við aðstæður þar sem hópar fólks hafa ekki réttinn til réttinda er mikil hætta á að það komist í hóp fólks sem er ofaukið.

Heimurinn brást fólki í tíð Hönnu Arendt og á tyllidögum segjum við: Aldrei aftur, aldrei skulum við bregðast aftur. Allt bendir þó til þess að þessi skelfingarsaga sé að endurtaka sig fyrir augunum á okkur. (Forseti hringir.) Það er skylda okkar allra að bregðast við þessari ógnvænlegu þróun, að læra af sögunni (Forseti hringir.) og standa gegn þeim sem nú gera sitt besta til að endurtaka hana.