154. löggjafarþing — 81. fundur,  6. mars 2024.

Störf þingsins.

[15:30]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Í áhugaverðum þáttum, Viltu finna milljón, sem sýndir eru á Stöð 2 er fylgst með pörum og fjölskyldum reyna að leysa úr flækjum heimilisbókhaldsins. Þessir þættir hafa vakið mikla athygli enda erum við kannski svolítið raunveruleikaþáttaþyrst þjóð og höfum gaman af því að sjá hvernig öðrum gengur í lífinu. Í þáttunum sjáum við þá þröngu fjárhagslegu stöðu sem fólk finnur sig gjarnan í og hefur jafnvel enga yfirsýn yfir eigin fjármál. Umfjöllun um þættina vakti mig til umhugsunar um fjármálalæsi þjóðarinnar og það þrætuepli sem fjármálalæsi og kennsla í fjármálalæsi getur verið. Með góðu fjármálalæsi gerum við einstaklingum kleift að taka upplýstar ákvarðanir um fjárhag sinn í samhengi við efnahagsumhverfið, auka lífsgæði og bæta afkomu sína og efla fjárhagslegan stöðugleika. Þetta eigum við öll að vita. Fjármálalæsi er nú kennt í grunn- og framhaldsskólum með misjöfnum aðferðum en þar sem námsmat í fjármálalæsi er ekki samræmt og verulegur skortur á námsefni í faginu má spyrja hvort kennsla í fjármálalæsi sé markviss. Útgáfa námsgagna á Íslandi er eitt af stærstu vandamálum skólakerfisins. Það gengur ekki lengur að ríkið setji almenna markaðinum stólinn fyrir dyrnar um að gefa út nýtt, fjölbreytt og vandað námsefni á grunnskólastigi til að efla gæði náms. Fyrir þessum breytingum á kerfi mun ég halda áfram að berjast. Öflugt fjármálalæsi er líka stór liður í að efla okkar lýðræðislega samfélag þar sem stjórnvöldum er veitt kröftugt aðhald. Það er ekki síst mikilvægt þegar sterkt ákall er eftir því að við berum meiri virðingu fyrir almannafé og nú þegar styttist í umræðu um fjármálaáætlun þurfum við að hafa það efst í huga að aukin skattheimta eða aukin skuldasöfnun ríkissjóðs bitnar fyrst og fremst á venjulegu fólki og lífskjörum íbúa þessa lands til framtíðar.