154. löggjafarþing — 81. fundur,  6. mars 2024.

Störf þingsins.

[15:32]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Það hefur talsvert verið rætt um málefni fíknisjúkra eftir að gigtarlæknirinn Árni Tómas Ragnarsson var sviptur lækningaleyfi að hluta. Hann má ekki lengur ávísa ópíóíðalyfjum til fíknisjúkra eftir að landlæknir komst að þeirri niðurstöðu að það væri réttast að gera það. Ég er þeirrar skoðunar að það sé erfitt að áfellast Árna Tómas fyrir að hafa reynt að hjálpa mjög veiku fólki og ég ætla svo sannarlega ekki að áfellast landlækni heldur sem er að sinna þeim skyldum sínum að hafa eftirlit með þeim lyfjum sem er verið að skrifa út. Þetta segir hins vegar talsvert mikla sögu um það hvað við erum enn úrræðalaus gagnvart þessum hópi. Núna veit ég að þessi 50–70 manna hópur sem var að fá lyf hjá Árna Tómasi lækni hefur að hluta til farið yfir í ópíóíðameðferðina, viðhaldsmeðferðina hjá SÁÁ. Þar blasir hins vegar við sú staða að þar er verið að þjónusta 300 manns að jafnaði en íslenska ríkið greiðir bara fyrir tæplega 100. Það vantar einhverjar 100 milljónir á ári til að sinna þessum hópi og það eru fjármunir sem SÁÁ tekur úr annarri þjónustu til að sinna þessum tiltekna hópi. Hér sjáum við auðvitað að það er eitthvað skakkt í gangi og við erum auðvitað ekki að sinna þessari sjálfsögðu heilbrigðisþjónustu með nægjanlegum krafti. En þetta segir okkur líka pínulítið um það að það eru kannski einhverjir einstaklingar þarna fyrir utan enn þá sem treysta sér ekki til að fara í þetta úrræði sem SÁÁ er að reka en eftir sem áður er þetta veikt fólk sem á rétt á heilbrigðisþjónustu. Við verðum að vera svolítið fordómalaus gagnvart því að mögulega getum við þurft að ræða einhver ný úrræði fyrir þennan mjög svo fámenna hóp sem yrði þá að vera undir einhvers konar umsjá spítalans og vísindafólks og fagfólks. Í öllu falli er það þannig að þetta mál með gigtarlækninn Árna Tómas Ragnarsson, sem skrifaði út lyf til veiks fólks, er að afhjúpa veikleika í okkar kerfi og það er brýnt að bregðast við.