154. löggjafarþing — 81. fundur,  6. mars 2024.

fjölmiðlar.

32. mál
[15:56]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég er nefndarmaður í allsherjar- og menntamálanefnd sem hafði þetta frumvarp til meðferðar og ég rita undir meirihlutaálitið sem hér var fjallað um og vel mælt fyrir. Ég tel að prýðileg vinna hafi verið unnin í nefndinni og að vel hafi verið farið yfir umsagnir. En það eru nokkur atriði sem ég tel rétt að árétta hér sem eru mikilvæg og brýnt að fara yfir. Það er það sem lýtur að auknu aðgengi og réttindum sjón- og heyrnarskertra, svo sem rétti til táknmáls, textunar og hljóðlýsingar á efni sem miðlað er, enda er það lykillinn að upplýsingum og menningu. Það er gríðarlega mikilvægt að fjölmiðlar þjónusti þennan hóp borgaranna sem eiga við sjón- og heyrnarskerðingu að stríða. Aukinn aðgangur sjón- og heyrnarskertra að efni fjölmiðla varðar réttindi sem eru á grundvelli samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem Ísland hefur fullgilt. Það er mikilvægt að þessi samningur verði löggiltur sem allra fyrst og er það eitt af baráttumálum Flokks fólksins að svo verði.

Hér er mikilvægt að taka í notkun tækni sem gæti gert það kleift að nýta stafrænar lausnir sem geta skipt máli, t.d. varðandi textun og myndefni. Eins og kemur fram í nefndaráliti þá undirstrikar meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar í áliti sínu — og það kemur fram í greinargerð með breytingunni — að með breytingum sé fastar að orði kveðið en í fyrri hljóð- og myndmiðlunartilskipun, þ.e. tilskipun Evrópusambandsins hvað það varðar. Ekki verði lengur um tilmæli að ræða, þegar kemur að því að gera þjónustu aðgengilega sjón- og heyrnarskertum, heldur verði fjölmiðlaveitum gert skylt að endurmeta stöðugt hvort möguleiki sé á að bæta þjónustuna við sjón- og heyrnarskerta, svo sem með því að gera áætlanir þar um. Hér er reynt að ganga lengra en að hafa þetta bara sem tilmæli og gera þetta að skyldu heldur að menn endurmeti stöðugt hvort möguleiki sé á að bæta þjónustuna til þessa hóps, þ.e. sjón- og heyrnarskertra, og geri áætlanir þar um. Það er mjög mikilvægt að fjölmiðlar, sérstaklega stóru fjölmiðlarnir, Ríkisútvarpið og Sýn, þ.e. Stöð 2, taki þetta til skoðunar, geri áætlanir sem lúta að réttindum og aðgengi sjón- og heyrnarskertra og nýti til þess nýjustu tækni, stafræna tækni.

Einnig er lagt til að fjölmiðlanefnd skuli birta upplýsingar á vef sínum um kröfur sem gerðar eru til fjölmiðla um aðgengi sjón- og heyrnarskertra að fjölmiðlaefni og geri sjón- og heyrnarskertum kleift að koma kvörtunum vegna brota á lögunum á framfæri á vefgátt á einfaldan og aðgengilegan hátt. Þarna er verið að fara fram á það að fjölmiðlanefnd geri þetta aðgengilegra fyrir sjón- og heyrnarskerta svo að þau geti komið kvörtunum á framfæri sé verið að brjóta lögin. Það er mjög mikilvægt að þessi hópur, sjón- og heyrnarskertir, geti náð fram rétti sínum verði þau vör við það að verið sé að brjóta á þeim hvað varðar þessi réttindi. Og eins og ég sagði áðan þá er gríðarlega mikilvægt að þessar áætlanir séu gerðar sem kveðið er á um og orðalagið, sem gert er skylt að endurmeta stöðugt, hvort möguleiki sé á að bæta þjónustu við sjón- og heyrnarskerta — þetta mat þarf að vera stöðugt. Það eru gríðarlegar tæknibreytingar sem hafa átt sér stað á undanförnum árum hvað þetta varðar og eru líka í farvatninu, t.d. með gervigreind og öðru slíku. Í framtíðinni er ekki ólíklegt að það verði textun í samtímanum, það að textinn komi samtímis, t.d. á YouTube — hún er kannski ekki alveg nógu góð en þar er það t.d. á ensku. Það má benda á að í 29. gr. fjölmiðlalaga, tal og textun á íslensku þegar hljóð og myndefni er á erlendu máli — það var rætt í nefndinni og kom fram umsögnum að það væri eðlilegt að þetta næði líka til þess þegar efnið væri á íslensku máli. Þetta er í eðli sínu kannski matskennt, það þarf að horfa til þess . En þetta er hópur sem við þurfum klárlega að líta til og það er sérstakur kafli í nefndaráliti meiri hlutans sem lýtur að réttindum sjón- og heyrnarskertra.

Einnig er fjallað um hatursorðræðu, það er mikilvægt ákvæði sem er 27. gr. fjölmiðlalaga um að óheimilt sé að hvetja til refsiverðrar háttsemi og kynda undir hatri á grundvelli tilgreindra þátta, m.a. kynþáttar, kynferðis, trúarskoðana og fleiri þátta. Hér er gríðarlega mikilvægt ákvæði sem ekki síst nú á tímum er mikilvægt að sé haft í hávegum á öllum fjölmiðlum landsins og ekki síst á tímum þeirrar samfélagsumræðu sem er í gangi núna. Ég vildi bara árétta þessi atriði. Annað atriði lýtur að því að það eru auknar skyldur til fjölmiðlaveitna og mynddeiliveitna. Það kom líka fram í umræðu í nefndinni varðandi stöðu einkarekinna fjölmiðla, þá sérstaklega að þeir séu komnir í samkeppni við erlendar fjölmiðlaveitur og mynddeiliveitur. Þá erum við líka að horfa til auglýsingatekna hvað það varðar.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra hvað þetta varðar en ég vildi árétta þau atriði sem ég fór yfir hér, sérstaklega varðandi réttindi sjón- og heyrnarskertra, hatursorðræðu og svo þessar auknu skyldur á fjölmiðlaveitur og mynddeiliveitur. Ég tel að þetta sé mál sem er ekki að fara frá okkur og líka í ljósi þess að á Íslandi hefur Ríkisútvarpið yfirburðastöðu, það fær bæði skattpeninga, 6 milljarða á ári, og hefur líka yfirburðastöðu á auglýsingamarkaði. Það er spurning hvort við getum, svona lítið samfélag, rekið sjálfstæða sjónvarpsstöð með fréttastöð og öllu í þannig samkeppni við ríkisvaldið. Það er klárt mál að það þarf að fara að taka á þessum málum. Það þarf að gera eitthvað róttækt til að skapa rými fyrir einkarekin fyrirtæki á þessum markaði og þá horfum við ekki síst á þessa breyttu tækni, þ.e. að við erum alveg hætt að horfa á línulegt sjónvarp. Það eru ekki allir sem horfa á sjónvarpið klukkan sjö, þetta er ekki línulegt áhorf. Og svo eru komnir hlaðvarpsþættir og fleira og það er auðvelt að taka upp myndefni og setja á netið. Ég vil meina að með Ríkisútvarpinu, eins og staðan er í dag, sé hreinlega verið að halda aftur af fólki í þessum geira, efnilegu fjölmiðlafólki sem gæti fengið að blómstra fengi það tækifæri til og tekjumódelið væri þannig að það fengi að njóta sín.