húsaleigulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta svar. Það er margt sem mig langar til að ræða við ráðherrann en við gerum það kannski seinna, t.d. um þróaðan leigumarkað á Norðurlöndum sem við þyrftum að skoða vel og vandlega og vita hvort við getum ekki búið til slíkan leigumarkað á Íslandi. En af því að ráðherra nefnir þessi gjöld, jú, þau ættu til lengri tíma að geta staðið undir uppbyggingunni. Ráðherrann nefndi vaxtarverki. Við höfum stundum verið að skilgreina eitthvað sem á að heita vaxtarsvæði og við sjáum þessi vaxtarsvæði standa frammi fyrir verulegum áskorunum hvað þetta varðar. Það er fínt ef sveitarfélag er að vaxa um 3–4% á ári en mörg sveitarfélög, bara sem dæmi Árborg og Reykjanesbær og mörg fleiri sveitarfélög, hafa verið að vaxa langt umfram það, 8–10% kannski á ári til fjölda ára. Þá veltir maður fyrir sér, af því að við vorum að nefna innviðagjöld, hvort það gæti verið lag að búa til einhvern sérstakan sjóð, einhvern innviðasjóð sem sveitarfélögin gætu gripið til til að hraða svona uppbyggingu. Það er til lítils farið af stað ef þjónustuna vantar svo. Það er ekki nóg að byggja hús ef sveitarfélagið er ekki í þeirri stöðu að standa undir þeirri þjónustu sem er í raun og veru skuldbundin. Við sjáum það bara að sveitarfélög komast oft á tíðum upp með það og við erum að rífast hér á þingi um að sveitarfélög séu ekki að veita börnum leikskólapláss á tilsettum tíma. Það er stór og mikill ágreiningur um það hér í þinginu hvernig sveitarfélögin standa sig í því. Þannig að ég held að við þyrftum með einhverjum hætti að standa betur með þeim sveitarfélögum sem eru í þeirri stöðu að ráða ekki við þessa hröðu uppbyggingu sem er til staðar vegna mikillar fólksfjölgunar.