húsaleigulög.
Frú forseti. Enn og aftur tel ég mig knúinn til þess að taka til máls um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum. Þetta er í þriðja sinn á tæpum tveimur árum sem ég stend hér og segi: Ég hef ekki skipt um skoðun. Athugasemdir mínar við það frumvarp sem hér liggur fyrir eru alvarlegar þótt margt í frumvarpinu horfi til betri vegar. Þær athugasemdir sem ég hef eru með þeim hætti að ég get ekki tekið þátt í því að styðja framgang frumvarpsins. Það er hvorki einfalt né auðvelt fyrir stjórnarþingmann að lýsa yfir andstöðu við stjórnarfrumvarp en, og ég veit að hæstv. ráðherra gerir sér grein fyrir því og átti ekki von á öðru, ég á enga aðra kosti.
Málamiðlun sem náðist hér um breytingu á húsaleigulögum fyrir u.þ.b. 15 mánuðum eða svo hefur verið þurrkuð út. Hún hefur að engu verið gerð. Það skal játað að hefði ég áttað mig á því að mál myndu þróast með þeim hætti þá hefði ég ekki tekið þátt í því að miðla málum með þeim hætti að hægt væri að tryggja samstöðu í þinginu um afgreiðslu málsins eins og gert var hér í desember 2022. Mér finnst eins og kerfið hafi ekki sætt sig við þá málamiðlun sem náðist, a.m.k. á milli stjórnarflokkanna, í desember 2022 og kerfið ætli sér að þvinga löggjafann til að gera það sem kerfið vill að löggjafinn geri.
Frumvarpið hefur áhrif á þann hluta leigumarkaðarins sem einstaklingar eru á, þ.e. þann hluta leigumarkaðarins þar sem einstaklingar leigja út íbúð til óskyldra eða ættingja. Það eru auknar skyldur, það er aukin skriffinnska samhliða víðtækri upplýsingaöflun ríkisins, hætta á sektum og það mun draga úr vilja fólks til að leggja út í þann leiðangur að leigja út húsnæði, a.m.k. til lengri tíma. Það kann vel að vera að einhverjir velji þann kost að fara þá í skammtímaleigu, í Airbnb o.s.frv. og vinna þar með gegn markmiðum þessa frumvarps. Ástæðan er sú að það mun ekki svara kostnaði og fyrirhöfnin er of mikil. Ég er sannfærður um það og hef fengið staðfestingu á því að fjölmargir einstaklingar sem leigja íbúðir sem þeir eiga, eina íbúð, munu hætta útleigu. Hvað mun þá gerast? Jú, framboðið mun dragast saman og verð, þ.e. leiguverð, mun hækka þvert á markmið frumvarpsins. Sem sagt, skráningarskylda leigusamninga einstaklinga mun fyrst og síðast koma niður á þeim sem þurfa eða vilja vera á leigumarkaði. Framboðið dregst saman og leiguverð hækkar.
Ég óttast, og það er enn verra, að hluti af leigumarkaðnum muni færast undir yfirborðið, að til verði svartur markaður fyrir leigumarkað, leiguhúsnæði, íbúðarhúsnæði, að hann muni eflast og þar með mun réttarstaða leigjenda versna. Þannig vinnur frumvarpið gegn tilgangi sínum. Við getum í raun sagt, af því að ég veit að það er löngun margra í þessum sal að innleiða hér og lögleiða hér leiguþak á íbúðaleigu, að þetta verður sýnidæmi fyrir það sem gerist ef við fetum okkur inn á þá braut að setja verðlagshöft á leigu. Það dregur úr framboði, viðhald á eignum minnkar og löngun og vilji manna til að standa að því að fjárfesta í leiguhúsnæði, byggja leiguhúsnæði, mun detta niður. Þetta er reynslan alls staðar í heiminum og allir hagfræðingar hafa varað við þessum aðferðum. Skráning leigu í gagnagrunn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er í mínum huga dæmi um það hvernig báknið þenst út. Það flækir líf einstaklinga, það eykur fyrirhöfn þeirra og kostnað og hefur áhrif á ákvarðanir, t.d. ákvarðanir um það hvort leigja skuli íbúð eða ekki og þá með hvaða hætti.
Því er haldið fram í greinargerð, og ég hef heyrt marga aðra þingmenn halda því fram, að það sé mikilvægt að hið opinbera, og í raun er það meginröksemd fyrir þessu ákvæði frumvarpsins, þ.e. ríkið, komi með skýrum hætti að húsaleigumálum jafnvel þó að um einkaréttarlega samninga sé að ræða. Einkaréttarlega samninga — það er auðvitað lykilatriði hér. Við erum að ræða um einkaréttarlega samninga. Það er verið að leggja til að ríkisvaldið eða ríkisstofnun skuli fylgjast með og skrá niður alla einkaréttarlega samninga á leigumarkaðnum — alla — að viðlögðum refsingum, sektum sem viðkomandi stjórnvald fær heimild til að beita verði þetta frumvarp samþykkt óbreytt. Í mínum huga er enginn eðlismunur á því að leggja lagalega skyldu á það að skrá leigusamninga hjá hinu opinbera og krefjast þess með lögum að viðlagðri refsingu að allir ráðningarsamningar milli launamanns og atvinnurekanda skuli skráðir í opinberan gagnagrunn til þess að hægt sé að hafa eins konar yfirsýn yfir vinnumarkaðinn, betri yfirsýn yfir vinnumarkaðinn, sem stjórnvöld telja að sé nauðsynleg. En löngunin til að fá betri upplýsingar, sem ég get alveg skilið, getur ekki réttlætt þær þvinganir sem verið er að leggja á einstaklinga.
Í 1. umræðu við frumvarp sem varð að lögum í desember 2022 eftir þá málamiðlun sem ég gerði að umtalsefni hér áðan — menn vilja greinilega ekki sætta sig við þá málamiðlun og færa fyrir því rök að hún hafi verið óframkvæmanleg sem ég kaupi ekki — nefndi ég að menn yrðu að fara varlega í að ákveða hvaða verkfæri og hvaða lagalegu þvinganir þeir ætla að leggja á einstaklinga til að ná ákveðnum markmiðum, í þessu tilfelli markmiðum um betri upplýsingar. Ég bað þingmenn um að velta því aðeins fyrir sér hvort við séum ekki hægt og bítandi með þessu að feta okkur inn í samfélag þar sem við teljum eðlilegt og nauðsynlegt að ríkið, opinber aðili, fylgist með og skrásetji alla samninga sem frjálsir einstaklingar gera með sér, hverju nafni sem þeir nefnast, vegna þess að ef rökin fyrir skráningarskyldu leigusamninga eiga að halda þá hljóta þau hin sömu rök líka að halda þegar kemur að ýmsum öðrum þáttum í samningum milli einstaklinga sem ríkisvaldið, stjórnvöld á hverjum tíma, telur eðlilegt og nauðsynlegt að það viti um. Þetta er hættuleg braut sem við erum að feta.
Ég ætla að segja enn og aftur orðrétt það sem ég sagði í þeirri ræðu sem ég vitnaði til: Það getur aldrei verið réttlætanlegt að ríkið teygi sig inn í og hafi afskipti af og krefjast þess að einstaklingar geri grein fyrir og skrái allar sínar gjörðir eða allt sem fram fer á milli tveggja frjálsra einstaklinga eða einkaaðila. Það er hugmyndafræðin sem þetta frumvarp byggir á. Og ef menn samþykkja að skrá skuli alla leigusamninga með þeim hætti sem hér er lagt til hljóta menn líka að segja já þegar næsta tillaga kemur um að skrásetja einhverja aðra einkaréttarlega samninga, ég nefndi ráðningarsamninga, það er hægt að nefna önnur dæmi, á grundvelli þess að stjórnvöldum líði betur og telji nauðsynlegt að vita hvað fólk er að gera og hafa upplýsingar þannig að þau geti tekið betri ákvarðanir.
Ég vara við þessu. Ég geri mér alveg grein fyrir því að það er ekki illur hugur ráðherra að leggja þetta mál til. En ég er að vara við því og ég mun ekki og get ekki undir nokkrum kringumstæðum samþykkt eða greitt þessu frumvarpi atkvæði mitt að óbreyttu. Nú vill svo til að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins samþykkti líka mjög ítarlega efnislega fyrirvara sem vonandi verður gerð grein fyrir hér á eftir. En það er í lagi að benda á a.m.k. eitt. Í greinargerð með frumvarpinu er lögð áhersla á að breytingarnar dragi ekki úr framboði og að áhrifaríkasta leiðin til að auka húsnæðisöryggi sé að auka framboð á leiguíbúðum. Þetta er algerlega kórrétt. En þetta frumvarp vinnur gegn þessum markmiðum. Því miður, því miður. Svo getum við auðvitað, þegar húsnæðisstefna kemur hér til 2. umræðu, sem verður til umfjöllunar í velferðarnefnd innan einhverra daga eða vikna, rætt um þá staðreynd að mikill meiri hluti þess fólks sem er í leiguhúsnæði er í leiguhúsnæði vegna þess að það á ekki aðra kosti, vegna þess að það er ekki til húsnæði. Við læknum ekki vanda sem myndast vegna skorts á húsnæði, hvort heldur er til kaupa á eigin húsnæði eða til leigu, með opinberum inngripum og þvingunum eins og hér er lagt til. Það er betra, skynsamlegra, að horfa til þess að reyna að ýta undir aukið framboð hjá sveitarfélögum, eins og hæstv. ráðherra vék réttilega að hér, en líka að fara að gera það sem við erum búin að tala um í mörg ár en okkur verður lítið úr verki, og það er að einfalda byggingarreglugerð og gera það hagkvæmara og skapa meiri möguleika á því að byggja ódýrt; ódýrara húsnæði, hentugt húsnæði fyrir fólk. Þá leysist vandinn. Skortur verður aldrei leystur með verðlagshöftum. Þá verður til svartur markaður, réttaröryggi þeirra sem reynt er að verja mun minnka og verð hækkar.