154. löggjafarþing — 81. fundur,  6. mars 2024.

félagsleg aðstoð.

405. mál
[17:41]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Enn á ný kem ég hér upp og mæli fyrir máli sem er til hagsbóta fyrir almannatryggingaþega. Þau eru orðin mýmörg hér á Alþingi Íslendinga og nú er ég að mæla fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, lífeyrisþegar búsettir erlendis. Með mér á frumvarpinu eru Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Gísli Rafn Ólafsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson. Það skal tekið fram að undantekningarlítið, ef ekki undantekningarlaust, ég get ekki alveg fullyrt það, hefur öllum þingmönnum verið boðið að taka þátt í þeim tugum mála sem Flokkur fólksins hefur komið fram með á þessum þingvetri en meginreglan virðist vera sú að vera ekki með okkur á okkar góðu málum þrátt fyrir að stefnan virðist vera önnur þegar kemur að því að reyna að selja atkvæði sitt. Þá er stefnan svolítið mikið önnur og allir vilja allt fyrir alla gera. En þegar við komum hér með mál eftir mál eftir mál sem eingöngu eru til að bæta hag og tryggja öryggi þeirra sem höllustum fæti standa í samfélaginu þá finnst mér við í Flokki fólksins svona gegnheilt vera afskaplega mikið eyland.

Í 1. gr. frumvarpsins segir svo, með leyfi forseta:

„Við 8. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Þrátt fyrir 2. mgr. 1. gr. skal greiða lífeyrisþega sem er búsettur erlendis heimilisuppbót, nema sýnt sé fram á að hann njóti sambærilegs stuðnings í því ríki sem hann flytur til.“

2. gr. hljóðar svo:

„Við 9. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Þrátt fyrir 2. mgr. 1. gr. skal greiða lífeyrisþega sem er búsettur erlendis sérstaka uppbót á lífeyri vegna framfærslu, nema sýnt sé fram á að hann njóti sambærilegs stuðnings í því ríki sem hann flytur til.“

Í greinargerð með frumvarpinu segir, með leyfi forseta:

„Þegar lífeyrisþegi flytur frá Íslandi til annars ríkis getur það haft áhrif á lífeyrisréttindi hans og önnur félagsleg réttindi. Búseta á Íslandi er skilyrði fyrir tryggingavernd, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga um almannatryggingar, en frá þeirri meginreglu eru undantekningar, svo sem ef annað leiðir af milliríkjasamningum. Ísland er aðili að nokkrum slíkum milliríkjasamningum. Ber þar helst að nefna EES-samninginn, en á grundvelli 29. gr. samningsins hefur verið innleidd reglugerð um samræmingu almannatryggingakerfa (reglugerð EB nr. 883/2004). Vegna þess geta Íslendingar flust til annarra EES-ríkja án þess að missa rétt til töku elli- eða örorkulífeyris.

Öðru máli gegnir um félagsleg réttindi sem falla ekki undir lög um almannatryggingar, jafnvel þótt viðkomandi réttindaflokkar séu beintengdir lífeyri almannatrygginga. Búseta á Íslandi er ófrávíkjanlegt skilyrði fyrir þeim réttindum sem fjallað er um í lögum um félagslega aðstoð, sbr. 2. mgr. 1. gr. laganna. Heimilisuppbót og sérstaka framfærsluuppbótin falla því niður ef lífeyrisþegi flytur til útlanda þótt hann fái áfram greiddan örorku- eða ellilífeyri frá íslenska ríkinu. Heimilisuppbót er aðeins greidd til elli-, örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega, og sérstaka framfærsluuppbótin greiðist eingöngu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega. Örorkulífeyrisþegi, sem engar aðrar tekjur hefur, getur átt von á 37% tekjuskerðingu ef hann flytur til annars EES-ríkis.“

Við skulum velta því fyrir okkur, það er nú aldeilis saga að segja frá því að stór hluti af þeim 3.000 Íslendingum sem hafa kosið með fótunum og ákveðið að flytja til annars lands, sumir algerlega en aðrir eru hálft ár erlendis og sérstaklega þegar kemur að heitari löndum og svo koma þeir og eru hluta af árinu hér heima, en að hugsa sér að stór hluti af þessum hópi er að flýja héðan vegna þess að þau geta ekki séð sér farborða á Íslandi. Hér er svo dýrt að lifa fyrir þessa einstaklinga sem er haldið í sárri fátækt. En þrátt fyrir það þá er nákvæmlega löggjöfin utan um þennan hóp þannig að þau geta átt von á 37% tekjuskerðingu bara við það að labba yfir landamærin og fara til annars lands. Það er engu líkara en að íslenska löggjöfin segi: Elskulegi örorku- og ellilífeyrisþegi. Við búumst við því að þú búir bara úti á berangri og þurfir í rauninni ekki á neinu húsaskjóli að halda. Heimilisuppbót fyrir þig, kæri elli- og örorkulífeyrisþegi, þú hefur ekkert að gera með hana. Við ætlum að skerða þig um 37% í viðbót við þá fátækt sem þú þegar ert hnepptur í.

„Undanfarinn áratug hafa stjórnvöld sífellt valið þá leið að auka vægi heimilisuppbótar og sérstöku framfærsluuppbótarinnar með þeim afleiðingum að réttindaflokkarnir eru órjúfanlegur þáttur af nauðsynlegri framfærslu lífeyrisþega.“ — Þannig að nú er heimilisuppbótin orðin það stór liður inni í framfærslunni, inni í greiðslu almannatrygginga, að þegar viðkomandi missir hana þá náttúrlega liggur það algerlega ljóst fyrir að viðkomandi verður fyrir gríðarlega miklu tekjutapi, allt að 37% tekjutapi. — „Falli réttindin niður vegna flutnings til annars EES-ríkis felst í því mismunun á grundvelli búsetu.“

Hver þekkir það ekki að fólki hér, jafnvel þótt það búi heima, er stórlega mismunað eftir búsetu, alveg eins og fólki er stórlega mismunað eftir efnahag.

„Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögum um félagslega aðstoð sem miða að því að tryggja að þeir lífeyrisþegar sem kjósa að búa erlendis verði ekki fyrir tekjuskerðingu vegna þess að heimilisuppbót eða sérstök framfærsluuppbót fellur niður.“

Þetta er eitt af þessum málum sem t.d. Landssamband eldri borgara hefur verið að leggja áherslu á. Ég tel mig geta fullyrt það hér og nú að það er nánast ekki til það hugsjónamál eldra fólks sem Flokkur fólksins hefur ekki smíðað þingsályktunartillögur eða frumvörp um. Það skiptir ekki máli hvort það lýtur að lífeyrissjóðnum, að hækka hann upp í 100.000 kr., frítekjumarkið, hvað lýtur að því að fá að halda heimilisuppbót og sérstakri framfærslu eins og þetta frumvarp ber með sér eða þegar við erum að berjast fyrir eldra fólk í sambandi við búsetuskilyrði á hjúkrunarheimilum. Hér virðist tilhneigingin frekar vera sú að ætla að einkavæða þann rekstur enn frekar með þeim skelfilegu afleiðingum sem við erum þegar farin að þurfa að horfast í augu við hér á okkar litla fallega landi þar sem þjónustu við eldra fólk hefur stórlega hrakað á mörgum stöðum þar sem einkareksturinn hefur tekið yfir því að þar gilda lögmál hagfræðinnar, að lágmarka allan tilkostnað en hámarka allan hagnað sem kostur er. Enda nefndi ég það í störfum þingsins í gær hvernig eigendur Sóltúns og Sólvangs í Hafnarfirði seldu húsakostinn fyrir 3,8 milljarða til græðgisvædda leigufélagsins Regins, greiddu sjálfum sér út 2 milljarða kr., 2.000 milljónir, settu það í vasann, byrjuðu á því að segja upp, leigðu síðan aftur húsakostinn af fyrirtækinu sem þau seldu húsnæðið, sögðu síðan upp a.m.k. 12 starfsmönnum til þess að spara í launakostnaði og í rauninni gengu það langt að senda bréf til aðstandenda og biðja þá vinsamlega að koma með tuskurnar sínar og hreinsivörur og kústa og fötur og þrífa herbergi pabba, mömmu, afa eða ömmu, koma og þrífa. Þetta er komið út í slíka hringavitleysu og ég segi: Við í Flokki fólksins virðum réttindi fólks til að kjósa með fótunum.

Við vitum líka að fullorðið fólk sem kýs að fara t.d. til Spánar, við vitum að það eru allmargir þar sem eru komnir á efri ár sem kjósa frekar að búa þar stóran hluta af árinu. Og hvers vegna ætli það sé? Það er sannað og það er staðreynd að kuldinn sem við búum við á veturna og annað slíkt hefur þau áhrif á flest okkar þegar við erum farin að eldast að við fáum alls konar slæmsku. Það er mjög mikið um gigtarsjúkdóma á Íslandi. Það er stórkostlegur munur á heilsu einstaklinga á síðasta æviskeiðinu sínu þegar þau flytja erlendis og geta verið í jafnara og heitara loftslagi. Við erum í rauninni að stuðla að því að þessum einstaklingum líði betur á síðasta æviskeiði sínu með því að greiða götu þeirra frekar en að hamla þeim með því að skerða þau um allt að 37% af allt of aumri framfærslu almannatrygginga.

Til gamans vil ég geta þess að það eru a.m.k. 25 ár síðan Norðmenn tóku það upp að vera hreinlega með — það er þarna rétt hjá Benidorm, ég man ekki hvað það heitir, hvort það heitir Altea eða eitthvað slíkt — þar er hreinlega hjúkrunarheimili. Þar eru bara dvalarrými fyrir eldra fólk. Þar er öll þjónusta fyrir eldra fólk og Norðmenn sem eru eftirlaunaþegar og eiga líka sumir hverjir lífeyrissjóðsréttindi og annað slíkt fá val. Þeir fá val um að dvelja þarna í hálft ár á hverju einasta ári ef þeir svo kjósa. Við erum hins vegar alltaf með þessa forræðishyggju og við ætlum alltaf að ráða.

Við ætlum alltaf að ráða því hvort fólk kemur eða fer og það nýjasta eru þessir ótrúlegu gjörningar sem við í Flokki fólksins komum auga á í atkvæðagreiðslunum rétt fyrir jólin, síðasta daginn í þingi, í bandorminum þar sem var verið að tala um a-lið 11. gr., sem átti hvorki meira né minna en bara strax hálfum mánuði seinna að ná fram að ganga. Þá um leið hefði það orðið þess valdandi að hver einasti einstaklingur af þessum 3.000 sem bjuggu erlendis hefði í raun misst persónuafsláttinn sinn, í dag er hann um 64.000 kr. á mánuði, bara misst hann á einu bretti algerlega án nokkurs undirbúnings og án nokkurs samtals hér í þinginu. Ráðherra hafði mælt fyrir málinu hér, hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, en einhverra hluta vegna, sennilega hefur hann verið að mæla fyrir málinu fyrir tómum sal eins og ég er að mæla fyrir hér og nú, fór það fyrir ofan garð og neðan. En svoleiðis verður það nú hérna því að það er mjög mikið um að vera og við erum dugleg hér, þingmenn, og stundum verður það svo að hlutirnir fara fram hjá okkur þrátt fyrir að við hefðum síst kosið að svo yrði. Þess vegna er nú gott að vera með puttann á púlsinum og virkilega skoða skjölin alveg grundigt og algerlega niður í kjölinn sem við erum að fara að greiða atkvæði um, hvað erum við að fara að greiða atkvæði um, og í þessu tilviki þá náðum við að stöðva, með samningi og aðstoð stjórnarandstöðunnar, það að þessir gjörningar yrðu að lögum 1. janúar síðastliðinn þannig að nú er fólkið okkar enn að fá persónuafsláttinn sinn. Enda get ég ekki alveg skilið þegar við erum að greiða skatta til íslenska ríkisins að það sé hægt að svipta okkur þeim réttindum sem fylgja því að vera skattgreiðandi á Íslandi, að fá að nýta sér persónuafsláttinn. Enda er líka íslenskum stjórnvöldum í lófa lagið í gegnum alla tvísköttunarsamninga að sjá til þess að einstaklingar sem vitað er að eru á erlendri grund og eru Íslendingar á erlendri grund geti ekki nýtt sér greiðslur beggja landa. Það liggur algerlega á ljósu þannig að nú er draumurinn sá að koma í veg fyrir að þessi gjörningur verði nokkurn tíma að lögum.

En hér erum við að berjast fyrir því með þessu frumvarpi að lífeyrisþegar, örorku- og ellilífeyrisþegar, fái að halda sinni heimilisuppbót og að gert sé ráð fyrir því að þau ætli enn að búa í húsnæði en ekki vera úti á berangri; fái heimilisuppbót sem á að styðja þau í að halda heimili og er í raun lunginn úr greiðslum frá almannatryggingum. Það er stærsti pósturinn. Það eru flestar krónurnar. Það er í raun búið að þróa kerfið í þá átt að heimilisuppbótin hefur núorðið mun meira vægi krónutölulega séð en hún hafði á árum áður, þannig að hér segi ég, frú forseti: Það er mannanna verk og það er á ábyrgð stjórnvalda hvernig þegnunum líður og hvernig þeim tekst að lifa á þeirri framfærslu sem þeim er sköffuð þegar þeir geta ekki vegna heilsufars, eða vegna annarra utanaðkomandi aðstæðna, unnið fyrir sér á almennum vinnumarkaði og unnið fyrir sér sjálfir. Þá er þessari ríkisstjórn sem öðrum ríkisstjórnum í lófa lagið að sjá til þess að fólkið okkar eigi a.m.k. í sig og á.

Það er líka á ábyrgð stjórnvalda að einstaklingar skuli finna sig knúna til þess hreinlega að flýja land og búa annars staðar þegar stór hluti þeirra, eins og ég sagði áðan, er að gera það vegna fátæktar. Hér er vaxandi fátækt. Hér er nýkomin út skýrsla sem bendir til þess að 40% allra heimila nái ekki endum saman og ríflega 10% þeirra búa við sára fátækt. Við fáum hverja skýrsluna á fætur annarri, við fáum hverja greinargerðina á fætur annarri, það er alltaf hægt að skipa starfshópa og stýrihópa um allt hvað eina og hér er látið eins og við vitum ekki raunverulega hver staðan er úti í samfélaginu en það liggur á borðinu og hefur gert það um árabil. Það vita það allir hér á þessu háa Alþingi hvernig raunveruleg staða er úti í samfélaginu. Það vita allir að það er vaxandi fátækt úti í samfélaginu. Það vita allir að það hefur aldrei verið meira ákall til hjálparstofnana um aðstoð en akkúrat núna og það vita allir að við erum að taka á móti þúsundum einstaklinga annars staðar frá sem við ætlum að hjálpa og aðstoða við að verða Íslendingar og við erum gjörsamlega á brauðfótum með þetta allt saman vegna þess að við sníðum okkur ekki stakk eftir vexti. Það liggur algjörlega á borðinu þannig að það er dapurt ef endalaust á að sækja í bognu bökin. Það er dapurt að horfa upp á það að ítrekað er stólað á það hér að það megi beygja bognu bökin meira en staðreyndin er sú að svo brotna krosstré sem önnur tré, þannig að á einhverjum tímapunkti verður ekki hægt að kvelja fátæka fólkið meira í sinni fátækt. Það hlýtur að koma að þeim tímapunkti.

Við í Flokki fólksins vildum gjarnan sjá fólkið okkar vilja meira vera heima og finna sig ekki knúið til þess að flýja, þeir sem einfaldlega eru að flýja vegna fátæktar. Við vildum gjarnan að þeir vildu vera áfram heima og þeir hefðu aðstæður til þess, hefðu bolmagn til þess, hefðu ráð á því að búa heima en þeir gera það ekki og enn einu sinni þá er maður að benda á ósanngirni og óréttlæti. Hvernig stendur á því að verið er að hrifsa af þeim heimilisuppbótina og sérstakan stuðning og skerða þau um allt að 37%?

Gerum við okkur grein fyrir því hvað einstaklingar eru að fá greitt frá Tryggingastofnun sem eru einhleypir og hafa í raun engu öðru úr að velja en greiðslum almannatrygginga? Hér er gjarnan talað um 313.000 kr., já, en það gleymist að segja að allar þær upphæðir sem hér eru tíundaðar og færðar á pappírinn eru fyrir skatt. Hvað er einstaklingur sem er með 320.000 kr. í tekjur á mánuði raunverulega að fá útborgað? Því það liggur algerlega á hreinu að hann labbar ekki til hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra og biður um óútfyllta ávísun um að hann geti fengið að nýta skattinn sinn þegar hann skreppur út í búð og verslar í matinn. Það er ekkert okkar sem getur nýtt þær greiðslur sem við setjum í ríkissjóð til að versla í matinn fyrir okkur sjálf.

Nú er að koma nýtt frumvarp, hugsanlega, sem á að vera einhver bylting fyrir almannatryggingaþega — einu sinni mér áður brá — þar sem við erum að horfa upp á hvernig á að klína starfsgetumatinu í gegn, það á að hækka grunnframfærslu upp í 380.000 kr. hjá sumum, fyrir skatt. Útborguð laun verða um 320.000 kr. Ég spyr: Hverjir treysta sér til að lifa af 320.000 kr. á mánuði í þeirri dýrtíð og þeirri verðbólgu og vaxtaokri sem við búum við í dag? Ekki ég. Mér þætti gaman að sjá þann ráðherra eða þann hv. þingmann sem treysti sér til þess. Ekkert af þessu fólki fær greiðslumat til að kaupa sér íbúð. Ekkert þeirra. Flestir þeirra greiða meira en 80%, sumir hátt í 100%, fyrir íbúðir sem þeir eru með á leigu, hvorki meira né minna. Eftir standa nánast engar krónur til að lifa af. Er það eðlilegt samfélag sem segist vera eitt af ríkustu samfélögum í heimi að við skulum segja að það sé munaður, það séu forréttindi, að fá að hafa rafmagn, það séu forréttindi að fá að hafa vatn? Það eru alger forréttindi að fá að hafa síma, fá að hafa tölvu, fá að hafa bíl, fá að geta keyrt á milli staða. Ísland í dag er búið að búa til stóran hóp einstaklinga sem er settur hjá garði og allt það sem ég hef talið hér upp flokkast hreinlega undir forréttindi fyrir þetta fólk. Er það furða þó að sum hafi reynt að hleypa í sig kjarki og koma sér burtu þar sem kostar u.þ.b. 50–70% minna að kaupa sér mat á diskinn? Svo ég tali nú ekki um leiguhúsnæði sem er í mörgum tilvikum tvisvar sinnum ef ekki þrisvar sinnum ódýrara en hér. Þetta er ástæðan.

Þess vegna skiptir miklu máli að við samþykkjum svona breytingartillögur á frumvarpinu sem ég er að leggja hér fram um það að þessir einstaklingar missi í engu af heimilisuppbót eða sérstakri framfærsluuppbót, að þessir einstaklingar verði aldrei skertir um 37% af 290.000 kr. Það er sárara en tárum taki að þurfa ítrekað að vera að koma upp með sanngirnis- og réttlætismál. Hvar er góða fólkið? Hvar er kærleikurinn og manngæskan? Hvar er virðingin fyrir þeim sem eru að ganga sitt síðasta æviskeið? Hvernig tökum við utan um þau? Ef það er svona, að skerða einstaklinga um 37% við það að þurfa að kjósa með fótunum vegna fátæktar, þá get ég ekki sagt annað en það að mér misbýður það og þá er ég að tala mjög fallega. Ég gæti alveg hugsað mér að nota öflugri orð, svo að ekki sé meira sagt.

Frú forseti. Ég vona bara að það verði tekið utan um málið af réttlæti og skynsemi og það fái meðferð í nefnd. Ég vona að þetta verði leiðrétt, þessi mannvonska sem mér finnst felast í því að hirða heimilisuppbótina og sérstakan stuðning af bláfátæku fólki sem í rauninni hefur enga möguleika á því að auka við tekjur sínar hvar sem það býr.

Við sjáum hvað verða vill, frú forseti. Við getum víst ekki gert annað en vonað það besta. En því miður er það oftar en ekki of mikið.