ársreikningar.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006, virkilega spennandi viðfangsefni. Í stuttu máli leggjum við flutningsmenn til afnám gullhúðunar eða blýhúðunar ársreikningalaga. Flutningsmenn eru auk mín hv. þingmenn Hildur Sverrisdóttir, Jón Gunnarsson, Óli Björn Kárason, Njáll Trausti Friðbertsson, Vilhjálmur Árnason, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Birgir Þórarinsson og Ásmundur Friðriksson.
Tillagan er tvíþætt. Í fyrsta lagi leggjum við til uppfærslu á stærðarmörkum örfyrirtækja samkvæmt lögunum. Þannig geti örfyrirtæki haft heildareignir upp á 55 milljónir í stað 20, veltu upp á 110 milljónir í stað 40 og allt að tíu stöðugildi í stað þriggja. Sömuleiðis er lagt til að hækka viðmið um heildareign og hreina veltu lítilla, meðalstórra og stórra félaga og samstæðna. reglna.
Reglurnar sem við leggjum hér til að verði breytt komu til vegna innleiðingar á ársreikningatilskipun ESB. Þegar við innleiddum hana, skuldbindingum okkar samkvæmt, ákváðu íslensk stjórnvöld eins og þeim er einum lagið að stærðarmörk örfélaga yrðu lægri en tilskipunin gerði kröfu um. ESB opnaði nefnilega á slíka blýhúðun og við Íslendingar látum helst ekki gott tækifæri til blýhúðunar fram hjá okkur fara. Hugsun ESB var reyndar sú að Evrópuríkin gætu einfaldað og minnkað stjórnsýslubyrði svo lítilla félaga, en það gátu íslenskir ráðamenn greinilega ekki hugsað sér.
Við leggjum því til að við leiðréttum stærðarmörkin þannig að íslensk lög gangi ekki lengra en ESB-tilskipunin. Það eru nefnilega fjölmargar kvaðir sem bætast við félög eftir því sem þau stækka og með því að við fylgjum ESB-þjóðunum að máli einföldum við reikningsskil margra íslenskra fyrirtækja. Við teljum að íslensk félög sem falla undir skilgreiningu Evrópusambandsins á örfélögum eigi hafa jöfn tækifæri til að stofna til eigin atvinnurekstrar og markmiðið ætti að vera að gefa þeim jafnan grundvöll við önnur félög í Evrópusambandinu en ekki draga úr samkeppnisstöðu þeirra með því að hafa öðruvísi og þyngri lagaumgjörð hér en þar.
Í öðru lagi leggjum við til að við fylgjum ársreikningatilskipun ESB varðandi það að tryggja endurskoðun ársreikninga ákveðinna félaga. Tillagan lýtur einfaldlega að því að íslensku stærðarmörkin hækki til samræmis við tilskipun ESB enda er það ótækt að íþyngjandi kvaðir séu lagðar á félög á Íslandi umfram það sem viðgengst á samanburðarmörkuðum í Evrópu.
Við flutningsmenn viljum leggja okkar af mörkum þar sem EES-gerðir eru allt of oft innleiddar með meira íþyngjandi hætti en EES-samstarfið kveður á um. Það er gengið lengra en regluverk ESB. Við teljum að innlend fyrirtæki eigi að sitja við sama borð og önnur fyrirtæki á innri markaði ESB. Það er nefnilega þannig að við göngum mjög gjarnan lengra en ESB þegar kemur að ýmsum kröfum en þegar okkar regluverk reynist síðan vera meira íþyngjandi en nýjar reglur ESB þá er aldrei talin ástæða til þess að endurskoða íslenskt regluverk. Þetta er okkar framlag, lítið en stórt skref í afhúðun íslensks regluverks. Framlagið er súrefni fyrir minni fyrirtæki og myndi leiða til þess að minnka kostnað þúsunda íslenskra fyrirtækja auk þess að gera þeim auðveldara að keppa við erlend félög á sama markaði.
Virðulegi forseti. Ég legg því til að málið gangi að lokinni 1. umræðu til hv. efnahags- og viðskiptanefndar.