154. löggjafarþing — 81. fundur,  6. mars 2024.

efling félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins.

126. mál
[18:09]
Horfa

Flm. (Bjarni Jónsson) (Vg):

Virðulegi forseti. Strandveiðar skipta sköpum fyrir fjölda fjölskyldna vítt og breitt um landið en 750 sjálfstæðar útgerðir hafa afkomu sína af handfæraveiðum að ótöldum afleiddum störfum fiskverkanda verkafólks og þjónustuaðila sem njóta góðs af. Tillaga þessi er liður í því að styrkja stöðu veiða í sjávarbyggðunum hringinn í kringum landið. Með því að leggjast skipulega yfir skiptingu aflamarks innan kerfisins tel ég að nýta megi kerfið til að stuðla að auknu byggðajafnrétti. Ef við fjölgum tækifærum fólks til að leggja fyrir sig vistvænar krókaveiðar á grunnslóð í atvinnuskyni og nýta sameiginlega auðlind þjóðarinnar, sjávarauðlindina, styrkjum við til muna atvinnulíf úti um allt land.

Hæstv. forseti. Ég mæli hér í dag fyrir þingsályktunartillögu um eflingu félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins. Að henni standa, ásamt mér, þingmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, þær Jódís Skúladóttir og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir. Tillagan hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að fela matvælaráðherra að efla félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins með aukinni hlutdeild í heildarafla og með endurskoðun á skiptingu aflamagns innan kerfisins og á hlutverki hverrar aðgerðar innan þess.“

Strandveiðar hafa valdið straumhvörfum fyrir byggðafestu á Íslandi. Það voru því mikilvæg og farsæl tímamót 25. júní 2009 þegar þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, skrifaði undir fyrstu reglugerðina um strandveiðar. Upphaf strandveiða fól í sér algjöra byltingu í möguleikum fólks til að hefja smábátaútgerð og blés lífi í hart leiknar sjávarbyggðir sem kvótakerfið og óheft framsal hafði rúið lífsbjörginni í þágu fámenns hóps aðila sem höfðu náð undir sig stórum hluta veiðiheimilda.

Strandveiðar hafa á undanförnum árum stuðlað að réttlátari uppbyggingu atvinnutækifæra hringinn í kringum landið. Það er ekki eftir neinu að bíða að ráðast í aðgerðir til að styrkja enn frekar strandveiðikerfið með aukinni hlutdeild í veiðiheimildum og skapa því sterkari og heildstæða umgjörð.

Tillagan byggir á sjávarútvegsstefnu hreyfingarinnar og felur í sér að stækka í áföngum félagslegan hluta fiskveiðistjórnarkerfisins með það fyrir augum að hlutdeild hans verði 8,3% af heildarafla í stað 5,3% í dag. Tillagan er liður í því að styrkja stöðu veiða í sjávarbyggðunum hringinn í kringum landið. Með því að leggjast skipulega yfir skiptingu aflamarks innan kerfisins tel ég að nýta megi kerfið til þess að stuðla að auknu byggðajafnrétti. Ef við fjölgum tækifærum fólks til að leggja fyrir sig vistvænar krókaveiðar á grunnslóð í atvinnuskyni, nýta sameiginlega auðlind þjóðarinnar, sjávarauðlindina, styrkjum við til muna atvinnulíf úti um allt land.

Þær sjávarbyggðir sem verst urðu úti vegna framsals aflaheimilda hafa sumar gengið í endurnýjun lífdaga fyrir tilstilli félagslegra veiða. Þar hafa strandveiðar skipt sköpum. Þær hafa glætt hafnir lífi sem áður stóðu tómar og sjávarútvegurinn var á undanhaldi. Félagslegar veiðar styrkja atvinnulíf hvar sem þeirra nýtur við. Þær stuðla að aukinni fjárfestingu í sjávarútvegi, ekki síst þar sem aflaheimildum er ekki lengur til að skipta. Með viðvarandi stækkun félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins til langs tíma mun sú fjárfesting aukast enn fremur og bæta atvinnuhorfur þar sem mest er þörf.

Virðulegi forseti. Þegar lýtur að félagslega kerfinu er eðlilegt að staldra við og kanna hvort allar aðgerðir innan þess standi undir hlutverki sínu. Það er öllum til heilla að félagslegar veiðar skili sem farsælustum árangri. Þess vegna er lögð til endurskoðun á innbyrðis skiptingu aflamarks á milli aðgerða sem og endurskoðun hverrar aðgerðar fyrir sig.

Ég hef hér nefnt strandveiðar en af öðrum mikilvægum byggðaaðgerðum má nefna sérstaka byggðakvóta. Ég vil byrja á því að árétta mikilvægi þess að árangur byggðaaðgerða sé sýnilegur og mælanlegur. Með tilliti til sérstaka byggðakvótans mætti auka gagnsæi með reglubundinni skýrslugjöf. Í samningnum komi fram markmið úthlutunar sem og mælikvarðar, fyrirkomulag, umsýsla og eftirfylgni og fleira sem styður gagnsæi. Þá tel ég að horfa ætti til þess að koma á samræmdum reglum um úthlutun almenna byggðakvótans og endurskoða dreifingu byggðakvótans, ekki síst að honum verði beint með ákveðnari hætti til smærri útgerða og skipa og nýta hann betur til að styðja við félagslegar veiðar.

Þá er fyrirsjáanlegt að aukinn hluti línuívilnunar verði ónýttur næstu ár vegna tækniframfara. Hefur hún dregist saman um tvo þriðju frá árinu 2016. Vert er að kanna hvort taka mætti upp með einhverjum hætti umhverfisívilnun með sömu formerkjum. Þá mætti til að mynda horfa til veiðarfæra sem hafa lítil áhrif á umhverfið, svo sem línuveiðar, gildruveiðar og/eða útgerð sem styðst við endurnýjanlega orkugjafa.

Að lokum vil ég segja um skel- og rækjubætur, sem komið var á til að minnka það áfall sem skel- og rækjuútgerðir urðu fyrir með áföllum stofnanna, að aflaheimildir þær sem gefnar voru eftir í skiptum fyrir heimildir til veiða þessara tegunda voru hluti af almenna fiskveiðistjórnarkerfinu en ekki því félagslega og eðlilegt að uppgjör við handhafa þeirra bóta taki mið af þeim forsendum. Þá tel ég að komi til álita að horft verði til þess hvort veiðiheimildirnar hafi verið nýttar heima fyrir til hagsbóta fyrir þau byggðarlög sem fyrir áföllunum urðu eða leigðar í burtu.

Virðulegi forseti. Við leggjum hér til, eins og áður segir, að stækka í áföngum félagslegan hluta fiskveiðistjórnarkerfisins með það fyrir augum að hlutdeild hans verði 8,3% af heildarafla í stað 5,3% nú. Enn fremur að úthlutun og meðhöndlun aðgerða innan félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins verði tekin til endurskoðunar með tilliti til þess hvernig þær veiðiheimildir nýtast sem best smærri byggðarlögum sem þær eiga að þjóna og færa stærri hluta þeirra til smærri útgerða og inn í strandveiðikerfið. Þá þarf að koma í veg fyrir að stór hluti þeirra endi hjá stærstu útgerðarfélögum landsins sem nú þegar halda á stærstum hluta allra veiðiheimilda við Íslandsstrendur.

Vil ég að lokum leggja til að málinu verði vísað til hæstv. atvinnuveganefndar.