154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

öryggisráðstafanir íslenskra stjórnvalda í tengslum við fjölskyldusameiningar Palestínubúa.

[10:32]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Í ljósi þess að hæstv. utanríkisráðherra og ríkisstjórnin hafa ákveðið að fara aðra leið en önnur Norðurlönd a.m.k. og kannski flest Evrópulönd varðandi aðstoð við fólk á Gaza-svæðinu og flytja fólk hingað í nafni svokallaðrar fjölskyldusameiningar frekar en að leggja áherslu á að senda til að mynda lyf og önnur hjálpargögn, eins og ég hef lagt til, í nærumhverfið sem gæti nú kannski hjálpað fleirum, í ljósi þessarar sérstöðu Íslands spyr ég eina ferðina enn: Til hvaða öryggisráðstafana hefur verið gripið hvað þetta varðar, til að komast að raun um það hverjir eigi raunverulega í hlut og hvaða ráðstafanir aðrar þurfi að gera samhliða móttökunni? Ég hef áður nefnt t.d. dæmið af Þýskalandi en þýsk stjórnvöld ákváðu að taka á móti allt að 200 starfsmönnum þýskra hjálparstofnana á Gaza. Þetta starfsfólk þýsku hjálparstofnananna var allt komið til Egyptalands og þar voru tekin viðtöl við það. Að því loknu var einungis helmingnum hleypt til Þýskalands. Hinir þóttu of hættulegir eða of mikil óvissa um hvort rétt væri og óhætt að taka við þeim. Því spyr ég eina ferðina enn: Til hvaða slíkra ráðstafana, hvaða öryggisráðstafana, hafa íslensk stjórnvöld gripið, hæstv. ráðherra og hans ráðuneyti eða aðrir? Einnig spyr ég hvað standi til hvað framhaldið varðar. Er von á því að ráðuneytið muni hafa forgöngu um að sækja þarna enn fleira fólk og svo í framhaldinu bjóða upp á enn frekari fjölskyldusameiningar, þ.e. eru einhver mörk á því hvenær þessu verkefni eigi að ljúka eða hvernig eða verður þetta viðvarandi um fyrirsjáanlega framtíð?