154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

öryggisráðstafanir íslenskra stjórnvalda í tengslum við fjölskyldusameiningar Palestínubúa.

[10:36]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Fyrst varðandi þetta síðasta. Mér skilst að Svíar hafi tekið á móti einhverjum dvalarleyfishöfum sem höfðu komið til Svíþjóðar áður og þá var einmitt sænsku leyniþjónustunni SÄPO falið að rannsaka bakgrunn þess fólks og hvað það hefði verið að aðhafast. En ég heyri ekki á hæstv. ráðherra að það sé mikið um slíkar athuganir eða öryggisráðstafanir af hálfu íslenskra stjórnvalda. Hér vísar hæstv. ráðherra bara í stofnun sem starfar auðvitað á grunni handónýtra laga, útlendingalaganna, sem ekki hafa verið sýndir neinir alvörutilburðir til að laga. Nýjasta dæmið er auðvitað litla útlendingafrumvarpið númer tvö frá Sjálfstæðisflokknum. Það er komið allt í uppnám eftir að Vinstri grænir ákváðu að hleypa því ekkert endilega í gegn. Ég ítreka þó spurninguna sem enn er ósvarað: Hvernig sér hæstv. ráðherra fyrir sér framhaldið hvað þetta varðar? Eru einhver mörk? (Forseti hringir.) Mun á einhverjum tímapunkti vera ákveðið að fjölskyldusameiningum sé lokið eða veltur þetta svona áfram um fyrirsjáanlega framtíð?