endurskoðun afstöðu gagnvart frystingu greiðslna til UNRWA.
Herra forseti. Ég ætla ekkert að ræða það hér við hæstv. ráðherra hvað var eðlilegt og hvað var ábyrgt. Það liggur fyrir að ég hef verið sammála aðalritara Sameinuðu þjóðanna en ekki hæstv. utanríkisráðherra og mér finnst það eiginlega engin réttlæting í stöðunni fyrir þessari bið að Noregur og Írar dragi vagninn. Framlag Íslands leikur kannski ekki lykilhlutverk í þessari aðstoð þótt það sé vissulega hátt miðað við höfðatölu og sé nauðsynlegt. Þetta snýst ekki síst um þau skilaboð sem við sendum til alþjóðasamfélagsins. Lítil friðelskandi smáþjóð hefur lítið annað fram að færa í utanríkismálum heldur en einmitt bara orð sín. Ég vil þó fagna tóninum hjá hæstv. ráðherra varðandi það að hann sér fyrir sér að úr þessu leysist.