hækkun stýrivaxta og áhrif þeirra á verðbólgu.
Herra forseti. Umræddur hagfræðingur er gríðarlega áhugaverður maður með mikla reynslu og það er nú fegurðin í því að vera með bæði akademískt frelsi og málfrelsi að geta komið hingað og haldið málþing og átt samtöl um þessi mál sem eru auðvitað gríðarlega flókin og marglaga. Það er algerlega þannig að peningastefna er ekki verkfræðilegt verkefni heldur mjög sálrænt líka og marglaga. Hins vegar finnst mér mikilvægt að við höldum því til haga að verðbólga á Íslandi er frábrugðin þeirri sem er í Evrópu sem var drifin áfram einmitt af orkukrísu sem var ekki hér. Hún á meira skylt við verðbólgu í Bandaríkjunum þar sem eftirspurn hefur drifið verðbólguna áfram. Vextir eru rétt tæki til þess og þeir eru sannarlega að virka og það hefur í för með sér að þeir líka kæla hagkerfið og þar með þann hluta sem snýr að uppbyggingu fasteigna. Hins vegar er vaxtastigið líka þannig að það hefur greinilega verið mikill hvati hjá þeim sem voru næstum því búnir að klára íbúðir að klára þær vegna þess hversu háir vextir eru. Það hefur leitt til þess að mikill aukinn fjöldi íbúða hefur komið á markað núna sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafði ekki áttað sig á áður en hefur gert nú. En það er sannarlega rétt að það kælir hagkerfið. Það sem umræddur hagfræðingur segir er alveg í andstöðu við meginþorra hagfræðikenninga en aftur, þetta er ekki verkfræðilegt verkefni. Það sem er verið að gera á Íslandi er leið allra vestrænna ríkja til að bregðast við verðbólgu. Ég er alltaf til í samtal um það hvaða aðrar leiðir eru færar en ég er þó ekki til í að vega að sjálfstæði Seðlabankans.