154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

staða launafólks á Íslandi.

[10:59]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Bara svo það sé alveg skýrt þá langar mig til að spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort hún sé hreinlega að segja Vörðu að eiga sig. Eru það bara ekki staðreyndir sem koma þar fram? Er hæstv. fjármálaráðherra að gaslýsa allt fólkið sem segist ekki ná endum saman, 40% launafólks sem svarar könnunum og mjög ítarlegri rannsókn Vörðu, ár eftir ár? Að segja við 60% einstæðra foreldra, mæðra sem eiga ekki fyrir 80.000 kr. útgjöldum sem koma fyrirvaralaust, að þær séu bara í bullinu af því að þær hafi alveg svakalega gott, er það svar hæstv. fjármálaráðherra við þessu? Ef það er svarið þá skil ég alveg svakalega vel að staða launafólks skuli vera sú sem hún er, af því að ráðherra sér sannarlega ekki vandamálið. Hún býr bara í einhverjum öðrum heimi heldur en launafólk á Íslandi. Og er það gott? Viljum við vera með fjármálaráðherra (Forseti hringir.) sem býr í einhverjum allt öðrum raunveruleika heldur en allt annað launafólk hérna á landinu?