aðkoma ríkisins að gerð kjarasamninga.
Herra forseti. Fyrst skiptir máli að halda því til haga að það er auðvitað til gríðarlega mikils að vinna að ná fram fjögurra ára samningum og það yrði erfitt að setja verðmiða á það ef það ekki tækist. Hins vegar erum við að vinna þessar aðgerðir og verðmiða á þær. Þær eru mjög stórar, þær eru mjög dýrar og þær hafa raunveruleg áhrif á ríkisfjármálin í ár og út samningstímann. Þær aðgerðir eru nánast að öllu leyti bótamiðaðar, sem þýðir líka að þær eru þá út samningstímann viðvarandi útgjöld ríkisins. Það hefur allan tímann legið fyrir að aðkoma okkar yrði að þessum samningum og hún er mikil.
Ég er sammála hv. þingmanni þegar hann bendir á þá staðreynd að sveitarstjórnarfulltrúar eru einmitt líka lýðræðislega kjörin rétt eins og við og sjálfstjórnarvald þeirra á sveitarstjórnarstiginu er skýrt. Hins vegar hefur líka legið fyrir að það er eftirspurn og það er ekkert nema sanngjarnt og eðlilegt að sveitarstjórnarstigið komi að kjarasamningum með einhverjum hætti fyrst við erum á þeim stað að semja — það er ekki hægt að semja á Íslandi nema með meiri háttar aðkomu stjórnvalda. En þá hafa auðvitað hvort sem það eru gjaldskrárhækkanir eða sú þjónusta sem sveitarfélögin veita bein áhrif á fjölskyldur í landinu. Ég er sammála hv. þingmanni þegar hann bendir á að með mjög skýrri aðkomu sveitarfélaganna gagnvart því að halda aftur af gjaldskrárhækkunum, sem þegar hafa verið kynntar og við sjáum í verðbólgumælingum, ef þær færu strax niður í 3,5%, bæði á þessu ári og næsta ári — það er raunverulegt framlag sveitarstjórnarstigsins inn í kjaraviðræður. Það er þá líka skýrt merki til þeirra sem eiga eftir að semja að þetta fer einmitt saman; þegar þú stórhækkar laun þá hefur það eðli máls samkvæmt áhrif á þær gjaldskrárhækkanir sem eru til að mæta kostnaði sem er að langmestu leyti launakostnaður einmitt þeirra starfsmanna sem sveitarfélögin greiða laun.