154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

aðkoma ríkisins að gerð kjarasamninga.

[11:06]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Sveitarfélögin óttast afleiðingarnar. Þegar ríkið ákveður að setja verkefni á sveitarfélögin sitja þau undantekningarlaust uppi með stærri bita en gert var ráð fyrir. Hvað gerist að fjórum árum liðnum þegar sveitarfélögin verða skilin eftir með þessa aðgerð sem ógerningur er að draga til baka? Á eftir þessum kjarasamningi kemur nýr kjarasamningur og hvað þá? Ætlar ríkið að halda áfram að borga 75% af skólamáltíðum til eilífðarnóns? Mér finnst erfitt að sitja undir því að vita nákvæmlega ekki neitt hvað ríkissjóður ætlar að gera í þessum kjarasamningi. Sveitarfélögin hafa verið að verðleggja þá kröfu sem þau eru að leggja á ríkið og mér skilst að hún sé 25 milljarðar. Ég veit ekki hvort þetta sé viðbót, að við séum þá að tala um 30 milljarða. Það hefur engin kynning farið fram á þessu og ég velti fyrir mér hvernig þetta getur samræmst því að skuldsetja ríkissjóð eða hvort ráðherra sé yfir höfuð tilbúin (Forseti hringir.) með einhverjar mótvægisaðgerðir til að mæta þessum auknu útgjöldum (Forseti hringir.) sem við stöndum frammi fyrir til viðbótar við ýmsa aðra áraun sem við erum að takast á við þessa dagana.