Samkeppni og neytendavernd.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að koma inn á þennan mikilvæga og brýna málaflokk vegna þess að til þess að markaðshagkerfið virki og sé til hagsbóta fyrir fólkið í landinu og til að fyrirtæki geti verið á eðlilegum samkeppnismarkaði þá er alveg gríðarlega mikilvægt að við hlúum að bæði samkeppnismálum og málum sem tengjast neytendum. Ég vil fyrst segja að það sem er í bígerð hjá okkur er akkúrat þveröfugt við það sem hv. þingmaður var að segja. Við erum núna að setja á laggirnar markaðssetningarlög sem við settum inn í samráðsgáttina. Við erum líka í fyrsta sinn að setja stefnu sem miðar að því að efla allt sem tengist neytendum. Ég sem viðskiptaráðherra beitti mér líka fyrir tímamótaskýrslu þar sem við berum saman hið íslenska fjármálakerfi við kerfið á hinum Norðurlöndunum og ég verð að segja það, virðulegur forseti, að ég sakna þess verulega að fleiri hafi ekki komið að því að taka upp þessa skýrslu og vekja máls á þeim gríðarlega mun sem felst í kjörum íslensks almennings samanborið við hin Norðurlöndin. Það verður því ekki sagt að sá ráðherra sem stendur hér hafi ekki staðið vaktina varðandi samkeppnismálin eða neytendamálin.
En að þeim spurningum sem beint var til mín þá vil ég fyrst að sjálfsögðu taka algjörlega undir það sem hv. þingmaður er að gera, og ég veit að það eina sem vakir fyrir hv. þingmanni er að efla starfsumhverfi Samkeppniseftirlitsins og neytendamála. Í fyrirspurninni nefnir hún svokallaða tæknirisa sem leika stórt hlutverk í daglegu lífi fólks um allan heim og hafa mikil áhrif á lýðræðisleg samfélög. Við tökum að sjálfsögðu undir það, mitt ráðuneyti, að umræðan öll er gjörbreytt hvað varðar markaðssetningu og aðgengi að fólki í gegnum þessa tæknirisa, hvort sem það er í gegnum Meta, sem kallast í daglegu tali Facebook, eða X-inu, sem er í eigu í Elons Musks, og fleiri fyrirtæki, þá er það ljóst að það er ekkert óeðlilegt og raunar mjög eðlilegt að það sé verið að skoða umsvif þeirra á markaðnum og hvaða áhrif þau hafa. Í mínum huga er alveg ljóst að þó að það séu ákveðnar áskoranir sem fylgja þessum fyrirtækjum þá eru líka ákveðin tækifæri. Þau hafa á sumum stundum verið beinlínis valdeflandi, og nefni ég til að mynda metoo-byltinguna og alls konar samfélagslega umræðu sem hefur verið til þess fallin að efla og treysta betur þau gildi sem við viljum standa fyrir.
Hv. þingmaður nefnir líka til að mynda hvaða áhrif þessi tæknirisar hafa gagnvart hefðbundnum fjölmiðlum. Þeir hafa gríðarlegt forskot, m.a. vegna alls þess magns af persónulegum upplýsingum sem þau hafa um okkur öll sem við veitum og gerum það af fúsum og frjálsum vilja. Þeir eru því í lykilaðstöðu til að hafa áhrif, ekki bara á kauphegðun okkar heldur líka skoðanir, hugmyndir og lýðræðislega umræðu. Við, mitt ráðuneyti, stóðum fyrir ráðstefnu síðastliðinn fimmtudag þar sem þetta var eitt af aðalumræðuefnunum þar sem við fengum helstu sérfræðinga í heimi til þess að fjalla um áhrif þessara fyrirtækja og hvernig þessi fyrirtæki ættu að koma að því að greiða fyrir þær fréttir sem hefðbundnir miðlar eru að búa til í mismunandi ríkjum. Þar erum við til að mynda að horfa til ríkja eins og Ástralíu, Kanada og fleiri aðila.
Ég vil líka nefna að við ráðherrar menningarmála á Norðurlöndunum létum gera skýrslu um tækni og lýðræði til að ná betri fótfestu í þessari umræðu vegna þess að það er alveg ljóst að misnotkun á einhverjum af þessum miðlum hefur beinlínis haft áhrif á kosningar og framvindu lýðræðislegrar umræðu. Þannig að ég tek heils hugar undir að þessi umræða er gríðarlega mikilvæg og ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á því. En ég vil líka nefna það að við erum að taka stór skref til að styðja við Samkeppniseftirlitið og neytendamál af því að þetta er algerlega okkar hjartans mál.