Samkeppni og neytendavernd.
Frú forseti. Við í mínum flokki trúum því að virk samkeppni fyrirtækja á frjálsum markaði sé algjört grundvallaratriði til að bæta hag almennings og standa undir raunverulegri velferð. Frjáls samkeppni er best til þess fallin að tryggja neytendum fjölbreytt úrval vöru og þjónustu og sanngjarnt verð. Við búum á fákeppnismarkaði en fram hjá því er varla komist í okkar fámenna landi. Einmitt þess vegna, til að tryggja virka samkeppni, er mikilvægt að vera vel tengd alþjóðlegum mörkuðum, helst sem mest án hindrana. Stærsta hindrun þess að íslenskur fákeppnismarkaður þjóni sínum tilgangi er örsmár gjaldmiðill sem beinlínis kemur í veg fyrir að erlend fyrirtæki hasli sér völl hérlendis. Það er dýrt að vera með krónuna. Hún kostar fjölskyldur, fyrirtæki, ríki og sveitarfélög um 300 milljarða á ári. Ekki síður er krónan gjaldmiðill hinna glötuðu samkeppnistækifæra. Hún stuðlar að fákeppni í litlu hagkerfi sem ekki má við því.
Það þarf ekki að hafa mín orð fyrir þessu, Gylfi Zoëga hagfræðingur sagði í nýlegu viðtali, með leyfi forseta:
„… þessar sveiflur sem þú ert að vísa til valda því að erlend fjárfesting, svona raunveruleg fjárfesting, er mjög lítil og hérna viðgengst fákeppni vegna þess að innlendu fyrirtækin, fákeppnisfyrirtækin, þau hafa ekki raunverulega samkeppni að utan. Krónan er samkeppnishindrun.“
Skýrara verður það varla. Í ljósi þess hve íslenskur samkeppnismarkaður er viðkvæmur, m.a. vegna hafta krónunnar, er gríðarlega mikilvægt að huga vel að neytendavernd og eftirliti með samkeppninni á viðkvæmum markaði. Þegar vegið er að slíku eftirliti í opinberri umræðu þá verðum við að spyrja okkur: Í þágu hvers er það? Nýlegt dæmi um tjón fyrir neytendur og almenning upp á 62 milljarða kr. vegna meintra samkeppnisbrota segir allt um mikilvægi þess að virk og heilbrigð samkeppni fái þrifist en jafnframt að virkt eftirlit sé til staðar. Við þurfum að hafa það í huga að það eru ekki fyrirtæki sem brjóta samkeppnislög heldur stjórnendur þeirra og það þarf að endurspeglast í löggjöf landsins
Að lokum vil ég minna á það að réttarbætur fyrir almenning, (Forseti hringir.) almenn neytendavernd og samkeppnislöggjöf hefur að stórum hluta komið til okkar utan, frá Evrópusambandinu sem myndi líka (Forseti hringir.) losa okkur undan samkeppnishindrun krónunnar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)