Samkeppni og neytendavernd.
Frú forseti. Virk samkeppni er ekki sjálfgefin. Stór fyrirtæki á hinum litla íslenska markaði hafa mikla hagsmuni af því að draga úr henni og þá ekki síst að dregið sé úr eftirliti með samkeppnisreglum. Stjórnvöld hafa ekki staðið sig í að verja hag neytenda. Skýrt dæmi um afleiðingar brota á samkeppnislögum er samráð skipafélaganna um vöruflutninga milli landa. Það hafði m.a. áhrif á vöruverð, verðbólgu og vexti, og þar með á kjör almennings, og gerði stjórnvöldum um leið erfiðara um vik við efnahagsstjórnina.
Það margborgar sig að styrkja Samkeppniseftirlitið, bæði með auknum fjárframlögum en einnig með lagabreytingum, með viðurlögum sem virka til að fyrirtæki haldi sig innan samkeppnislaga og skýrum ákvæðum til að gæta almannahagsmuna í anda tilskipunar ESB frá árinu 2014, sem nefnd hefur verið hér í þessari umræðu, um viðurlög við samkeppnisbrotum og um leiðir fyrir neytendur til að sækja rétt sinn þegar samkeppnislög eru brotin.
Á síðasta kjörtímabili þegar breytingar voru gerðar á samkeppnislögum voru þær til að veikja Samkeppniseftirlitið. Fjárframlög til eftirlitsins eru skorin við nögl, bæði nú og þá. Hæstv. ráðherra boðar öflugri neytendavernd. Vonandi eru það ekki bara orðin tóm og stefnubreyting hefur átt sér stað í málaflokknum þótt sú sem hér stendur sé tortryggin, einkum í ljósi sögunnar.