154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

dýrasjúkdómar o.fl.

483. mál
[12:14]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir voðalega góðar spurningar. Hvernig er staðan í dag? Við skulum byrja á því hvernig hún er hjá matvælafyrirtækjunum. Heilt yfir er það þannig að þeir vefir sem ekki eru ætlaðir til manneldis fara í ákveðinn farveg, þeir eru bara brenndir. Sum fyrirtæki hafa haft — mér er ekki alveg kunnugt um hvort það er enn þá þannig í dag en það var alla vega þannig að það var hægt að fá ákveðna gáma sem fyrirtæki voru með á sinni lóð og brenndu úrgang. Það er sömuleiðis þannig að hræin fara í þessa einu brennslu sem er á Reykjanesinu. Á hinum almenna sveitabæ er það nú þannig að flest sveitarfélög hafa ákveðinn farveg, þ.e. það eru svokallaðir hrægámar, hvort sem það eru þá gámar sem dýrunum er safnað í eða frystigámar sem er sömuleiðis safnað í. En allt er þetta síðan urðað einhvers staðar. Og bara til að vera alveg heiðarlegur með það þá er það nú þannig að það eru ekki allar dauðar skepnur sem fara í þennan farveg og eru þá dysjaðar einhvers staðar með viðeigandi hætti á mörgum svæðum, en líka með mjög óviðeigandi hætti, og það er engin sérstök regla í kringum það hvernig það er gert. En þess þá heldur er mikilvægt að koma þessum hlutum í farveg eins og við leggjum til hér í nefndaráliti atvinnuveganefndar.