154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

dánaraðstoð.

771. mál
[12:52]
Horfa

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Þrátt fyrir að helmingur lækna sé fylgjandi þessu þá þýðir það kannski ekkert endilega að þeir sjálfir vilji gera þetta, þó að þeir séu kannski hlynntir lögfestingunni. Í rauninni gæti það gerst þar sem valfrelsið er á þennan hátt að þeir væru kannski fylgjandi því að þetta yrði sett í lög en þeir vildu ekki gera þetta sjálfir og þar af leiðandi gætum við komist í þær aðstæður að það sé enginn læknir sem vilji framkvæma þetta. Hefur hv. þingmaður rætt við lækna um þeirra afstöðu og hvernig þeir sjá framtíðina fyrir sér í þessum málum?