154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

dánaraðstoð.

771. mál
[12:54]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni framsöguna. Þetta er umræða sem hefur verið að sækja í sig veðrið á síðustu árum og sennilega kominn tími til þess að við fáum hér á þingi til umfjöllunar frumvarp, raunverulega tillögu um það hvernig umgjörð dánaraðstoðar gæti litið út frekar en að ýta þessu á undan okkur í einhverjum tillögum um skoðanakannanir eða hvað það er. Hér getum við bara tekist á við málið sjálft og rætt það á þingi.

Mig langar sérstaklega að spyrja hv. þingmann út í IV. kafla frumvarpsins sem snýst um eftirlit. Við þekkjum það náttúrlega víðs vegar úr kerfinu að eftirlit með viðkvæmri þjónustu er oft allt of lítið, eftirlit þar sem inngrip eru mikil er sömuleiðis allt of lítið. Tökum bara dæmi um eftirlit með störfum lögreglu. Þar eru heimildir þeirrar eftirlitsnefndar í skötulíki. Það er mjög mikilvægt að eftirlitið sé sjálfstætt og það sé vel fjármagnað. Þess vegna fagna ég því að hér sé nokkuð ítarlega fjallað um ramma utan um eftirlit með dánaraðstoð af því að hér kemur saman þetta tvennt, viðkvæm þjónusta og nokkuð mikil inngrip. Hv. þingmaður yfir stöðuna í ýmsum öðrum löndum og mig langar að spyrja hvernig þessu eftirliti sé háttað þar sem er kannski komin mest reynsla á dánaraðstoð, hvernig eftirlit slíkra nefnda hafi reynst. Og kannski helst vegna þess að við viljum byggja sem sterkasta löggjöf: Hvaða víti er helst að varast, hvað í framkvæmd þeirra landa hefur komið fram við eftirlit sem við þurfum að gæta okkar á að gerist ekki, ef við lögfestum þetta hér?