154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

dánaraðstoð.

771. mál
[12:59]
Horfa

Flm. (Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir) (V) (andsvar):

Forseti. Hér kemur hv. þm. Andrés Ingi Jónsson með bara mjög góða tillögu sem þarf þá kannski að skoða betur í nefnd varðandi það til hvers konar stjórnvalds er hægt að kæra ákvörðun nefndarinnar. Í frumvarpinu er lagt til að ákvörðun nefndar sé ekki kæranleg til ráðherra sem ber ábyrgð á málaflokknum vegna þess að þetta er sjálfstæð nefnd sem á að vinna á sínum eigin forsendum en ekki beint í nafni ráðuneytis. Nú erum við að taka 1. umræðu um málið. Því verður vísað til nefndar og ég tel mikilvægt að við í þeirri vinnu reynum að vernda þá réttarstöðu einstaklinga að þeir geti óskað eftir því og sótt réttar síns um að mál þeirra sé endurskoðað af nefndinni eða þá öðrum nefndarmönnum eins og varamönnum, eins og kveðið er á um í frumvarpinu að eigi einnig að skipa.